157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[12:36]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Ég er sammála honum um sumt, að það sé dálítið bratt að innleiða þetta núna. Þó að það hafi verið ákveðinn fyrirsjáanleiki fólginn í því að þetta mál hafi verið til umfjöllunar, t.d. á fyrra kjörtímabili, þá breytir það því ekki að menn hafa svo sem ekki fundið raunverulegar lausnir til þess að komast fram hjá því að eftirlitið með þessu verði verulega íþyngjandi og kostnaðarsamt. Að því leyti til held ég að það sé skynsamlegt að fresta þessu máli og menn finni þá bara leið til að ná í þennan 3,5 milljarð með öðrum hætti. Það er einmitt góð tillaga frá hv. þingmanni að spara því það væri auðvitað skynsamlegasta leiðin. Þegar frumvarpið var upphaflega lagt fram var það hugsað sem tekjulaust, það væri í rauninni bara verið að samræma þá hvernig haldið væri utan um hreinorkubíla og svo aðra bíla.

Mig langar til þess að forvitnast í mínu seinna andsvari til þingmannsins. Nú höfum við séð þegar verið er að ræða að þeir borgi sem slíti og síðan sér maður tölur í frumvarpinu þar sem er í rauninni veldisvöxtur á sliti á vegum með tilliti til þyngdar ökutækja. Þá langar mig til að spyrja hv. þingmann: Nú hefur ekki hvarflað að öðrum þjóðum að innleiða þetta. Getur verið að við séum einfaldlega með lakari veggæði heldur en aðrar þjóðir fyrst það er ekki þannig annars staðar að menn séu að viðhafa þessa tekjuöflunarleið? Hvort þingmaðurinn þekki þess dæmi og hvort það sé þannig að við mættum kannski bara hreinlega gyrða okkur í brók gagnvart veghaldi á Íslandi?