157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[12:38]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Þetta var áhugaverð spurning hjá hv. þm. Ólafi Adolfssyni. Vegir og slit á vegum; það er öllum hollt að skoða tölur og línurit yfir slit bifreiða og farartækja á vegum miðað við þyngd. Það kemur yfirleitt á óvart sökum þess að þetta er ekki svona stighækkandi heldur er þetta í svokölluðum veldisvexti, þ.e. 10 tonna bifreið og 20 tonna bifreið, 20 tonna bifreið slítur ekki helmingi meira en 10 tonna bifreiðin heldur hvort það sé fjórum sinnum meira. Þetta er í veldisvexti. Ekki kann ég þessi fræði en þetta er svona samt, þ.e. ég kann ekki tölurnar. Við eigum auðvitað við það vandamál að stríða á Íslandi að í erfiðu landi eigum við ekki mjög hörð efni í vegi með tilliti til slits. Við höfum alvarlega vanrækt uppbyggingu vegakerfisins, þ.e. undirlag víðast hvar undir flestum vegum er með þeim hætti að vegirnir þola ekki þá miklu umferð sem hefur stóraukist bara á síðustu 10–15 árum og flutninga eftir vegum, þungaflutningar altso. Við erum auðvitað að súpa seyðið af því. Auðvitað þarf einhver að greiða þetta og menn hafa ýmsar hugmyndir um veggjöld og hækkun á gjöldum á eldsneyti og svo þetta kílómetragjald núna. Einhvern veginn verðum við að leysa þetta. Ég var alltaf hrifinn af þeirri hugmynd ef það tækist að láta ferðamanninn borga sem mest í viðhaldi vega.