157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[21:24]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. formanni Sjálfstæðisflokks Íslands fyrir hennar ræðu. Við komum úr sama kjördæmi, Suðurkjördæmi, og með tilliti til mála í því kjördæmi þá ætlaði ég kannski að fjalla um hugsanleg áhrif á því svæði. Ég hef svolitlar áhyggjur af ferðamönnunum þegar þeir taka bílinn á leigu í Keflavík og ákveða síðan hvert þeir ætla að fara, mig grunar að það gæti haft áhrif þegar þeir geta reiknað út að þetta kosti svo og svo mikið eftir því hvert þeir fara; Gullfoss, Geysir, tiltölulega stutt ferð, kannski Seljalandsfoss. En svo er hættan, ég óttast það, að ferðamaðurinn ákveði að fara ekki mikið lengra. Hann á auðvelt með að reikna út hvað þetta mun kosta fram og til baka. Við erum að tala þarna um staði eins og Jökulsárlón og Skógafoss jafnvel, allt austur á Höfn í Hornafirði. Ef við flytjum okkur nú aðeins út úr kjördæmi okkar þá er enn meiri hætta á því að fólk hugsi sig tvisvar um áður en það tekur einhvern hring á Vestfjörðum, nú eða út á Tröllaskaga og taki þar hring til Siglufjarðar o.s.frv., vegna þess að þetta verður miklu erfiðari ákvarðanataka þegar þú getur raunverulega séð strax við upphaf ferðar hvað þetta muni kosta í kílómetrum og hvað þú þarft að reiða fram. Hvaða álit hefur hv. þingmaður á þessum hugrenningum?