157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[21:28]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar hugrenningar og þetta svar og auðvitað er lykilatriðið hér dreifing ferðamanna. Það er lykilatriði í þessari skattlagningu, hún getur haft áhrif á það jafnvel þó að kostnaður við að aka einhverja ákveðna langa vegalengd sé ekki meiri, það er hugsanlegt í einhverjum tilvikum í einhverjum gjaldflokki að skattlagning sé svipuð. Þetta eru nú ekki nema 3,3 milljarðar sem ríkisstjórnin ætlar að fá út úr þessu þó að hún þurfi að kosta 1,5 milljörðum til þess að ná þessum peningum, það er svona hálfkjánalegt. Ég kallaði þetta hlægilegt hérna fyrr í dag. Það væri nánast hlægilegt að fara út í svona viðamikla breytingu, svona flókna og erfiða breytingu sem kostaði svona mikið. Það væri nánast hlægilegt þegar þetta er einfalt í dag. Það væri hægt að rukka þetta gjald við dælu og gjaldendur væru þrír eða fjórir og þetta gæti varla verið einfaldara og ef menn vildu ná sér í aukinn pening þá hækkar bensínverð og lækkar næstum daglega.

En það sem ég ætlaði að spyrja um var þetta: Menn leggja núna á kílómetraskatt. Óttast ekki hv. þingmaður að um leið og fer að harðna á dalnum hjá stjórnvöldum — þau eru nú ekki að fara að draga saman ríkisútgjöld og svo vantar náttúrlega alltaf aura í eitt og annað sem þau dreymir um — óttast hv. þingmaður ekki það sem ég óttast kannski mest í þessu, að þarna komi nýr skattur, ný tegund, og stjórnvöld freistist til að hækka hann? Og ekki bara skattinn heldur freistist þau til að lækka kannski ekki bensínverðið til móts við það og jafnvel þótt þau myndu gera það, þá freistist þau til að hækka það verð. Ef það kemur ein loftslagsskuldbindingin enn þá væri hægt að hækka t.d. kolefnisskattinn á bensínið einhvern tímann á næsta eða þarnæsta ári. Óttast hv. þingmaður að það verði svona verðhækkunarskriða í framtíðinni?