kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að eiga hér samtal við mig um þennan skatt sem ríkisstjórnin hyggst leggja á. Ég deili áhyggjum hv. þingmanns af skattagleði þessarar ríkisstjórnar, hún kemur mér reyndar töluvert á óvart miðað við fyrri orð bæði Viðreisnar og Samfylkingar í aðdraganda kosninga fyrir rétt rúmu ári síðan þar sem var margsagt við kjósendur þessa lands: Við ætlum ekki að hækka skatta hér á venjulegt fólk. En hvað er verið að gera núna? Það er verið að hækka skatta á hvert einasta heimili á Íslandi, á hvert einasta fyrirtæki á Íslandi. Það er bara þannig. Margir kunna að segja að þetta sé ekki mikið. Ég sagði í ræðu minni í gær að það varð tekjufall vegna komu hreinorkubíla inn á markaðinn og það er búið að bregðast við því. Það er auðvitað mjög eðlilegt að við öll sem erum að nota vegakerfið greiðum fyrir þá notkun, ekkert eðlilegra. En það er búið núna að stoppa í það gat sem myndaðist við það að hreinorkubílarnir voru ekki að leggja til vegakerfisins. Við erum með einfalt kerfi í dag sem er skilvirkt og hagkvæmt og ég held að við ættum að halda okkur við það.
Ég tek undir með hv. þingmanni, vitaskuld munu misgáfulegar ríkisstjórnir freistast til þess að hækka kílómetragjald, hækka kolefnisgjald, hækka tekjuskatt eða hvað eina annað til þess að geta sinnt gæluverkefnum sínum hingað og þangað og það er auðvitað mikið áhyggjuefni að í fjárlögum, fyrstu fjárlögum þessarar ríkisstjórnar, skuli þrátt fyrir fögur orð vera (Forseti hringir.) boðaður útgjaldaauki á næsta ári upp á 143 milljarða. Þetta er öll tiltektin hjá ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, útgjaldaauki upp á 143 milljarða og það þarf auðvitað að sækja skatt í þetta.