kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Það er ekki oft sem ég hækka ræðupúltið en ég ætla að nota tækifærið. [Hlátur í þingsal.] Það er margt að segja um þessar óskilvirku og flóknu skattatillögur ríkisstjórnarinnar, af mörgu að taka eins og hv. þingmaður fór yfir í ágætri ræðu sinni. Ég heyrði að hún var mjög spennt að komast loksins í hana og það þrátt fyrir að vera ekki mjög háð bílnotkun. Eins og hv. þingmaður kom inn á þá hafa borist fjölmargar umsagnir í þessu máli. Meðal þess sem hefur verið gagnrýnt eru auknar skriffinnsku- og skráningarkröfur við þetta flókna kerfi. Þar hafa sérstaklega verið nefnd lítil fyrirtæki og einstaklingar sem hafa af einhverjum sökum ekki burði til að takast á við svona flókna stjórnsýslu og aukið eftirlit. Mig langaði til að heyra sjónarmið hv. þingmanns til þessa.