157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[21:55]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Nú þekki ég ekki þetta nýja kílómetragjaldskerfi sem rafbílaeigendur hafa kynnst á þessu ári. Ég hef verið að reyna að viða að mér upplýsingum um þetta og það er auðvitað eitthvert umstang í þessu. Þetta er svona eins og kannski álestur á rafmagni sem maður þekkti hérna í gamla daga. Það var nú mikið eftirlit með þeim og löggiltir mælar. Inni í öllum húsum eru löggiltir rafmagnsmælar sem mæla rafmagnið og svo er lesið af þeim einu sinni á ári. Þetta er með einhverjum hætti orðið rafrænt. Þegar kemur að einhverjum svona rafbílum þá hygg ég að þetta sé kannski miklu einfaldara en þegar kemur að jarðefnaeldsneytisbílunum, þ.e. eftirlitið með þessu. Ég hef heyrt því fleygt fram í umræðunni að menn kalli eftir því að menn hugleiði það hvort það sé ásættanlegt að það sé lagður á skattur samkvæmt einhverjum mælum sem eru ekki löggiltir, eins og eru á bílunum í dag, og hægt er að, eins og maður segir kannski, eiga við kílómetramælana. Ég átta mig ekki á því hvernig menn ætla að hafa almennilegt eftirlit með þessu. En það liggur fyrir að þetta er meira umstang fyrir fólk. Menn borga mánaðarlega einhverja reikninga og svo þurfa þeir að gæta að því að lesa af. Menn láta áætla á sig en svo kannski uppfæra þeir það ekki og fá kannski bakreikning einu sinni á ári eða jafnvel eftir tvö, þrjú ár í tilfelli nýrra bíla þegar í ljós kemur að aksturinn hefur verið meiri. Ég veit það ekki. Er þetta betra kerfi en það kerfi sem við höfum í dag varðandi jarðefnaeldsneytisbílana þar sem menn vita hver skatturinn er og eru búnir að borga hann í hvert skipti sem þeir kaupa eldsneytið? Ég er ekki sannfærð um að þetta sé endilega betra kerfi, a.m.k. ekki á meðan við sitjum líka uppi með skattheimtuna annars staðar.