kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Hv. þingmaður kom einmitt inn á það sem mig langaði til að ræða hér í síðara andsvari sem er flækjustigið og hversu tímafrekt þetta getur orðið, sérstaklega varðandi eldsneytisbílana, sem getur auðvitað aukið möguleikana á misnotkun, mistökum og misræmi. Ég var einmitt að ræða þetta við dóttur mína í dag í bílnum og við vorum að ræða svona almennt, eins og maður eðlilega gerir við níu ára dóttur sína, um skattheimtu og hvernig hún getur leitt til þessa ef hún verður of flókin eða ósanngjörn. En er þetta ekki einmitt orðið ákveðið stef hjá þessari ríkisstjórn? Þessi óbilandi trú á því að þú getir fiktað eftir hentisemi í skattheimtu og kerfinu og haft það eins og þér sýnist og afleiðingin verði alltaf auknar tekjur. Er þetta ekki bara orðin einhver óbilandi trú þessarar ríkisstjórnar, að geta fiktað í skattkerfinu með þessum hætti?