kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég tek undir með hv. þingmanni að við skulum vera minnug þess að bíllinn á Íslandi er úlpan okkar, bíllinn er skjólið okkar fyrir veðrum og vindum og við munum ekki leggja bílnum. Það verður ekki þannig, alveg sama hver draumsýn meiri hlutans í borgarstjórn Reykjavíkur er.
Af því að ég veit að hv. þingmaður er fær lögfræðingur þá langar mig að spyrja hv. þingmann hvort fjármálaráðherra þurfi ekki að átta sig á því að honum er í raun kannski ekki stætt á því að rukka kílómetragjald af rafmagnsbílum og smábílum eftir hraðamæli bifreiða þar sem ekki er með neinu móti hægt að löggilda þá. Er það þá lögbrot í dag að rukka samkvæmt þessum mælum? Núna erum við t.d. með rafmagnsmæla heima hjá okkur og hitaveitumæla og það eru eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Þetta er allt með löggildingu. Rútur og trukkar eru með (Forseti hringir.) löggildingu og þurfa að endurnýja það. Standast þessar sérhugmyndir ráðherra um að ætla að rukka samkvæmt þessum mæli (Forseti hringir.) einfaldlega skoðun og lög? Telur hv. þingmaður að þetta sé lögbrot?