kílómetragjald á ökutæki.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir fína ræðu. Ég veit ekki hvort ég eigi að hætta mér í að fara áfram með löggildinguna vegna þess að ég var búinn að vera að hugsa svolítið mikið um hana í dag en svo sprettur hún upp í þessari umræðu. Við höfum í að verða tvö ár rukkað rafmagnsbíla um kílómetragjaldið og ég hef svo sem ekki heyrt neitt um dómsmál eða annað um það. Það er reyndar áhugavert vegna þess að í mörg ár hefur verið bent á það sem einn svona hæng á þessu með bensínið og olíuna og dísilinn að það séu ekki löggiltir mælar í bílum, hvernig eigi að fara með þetta. Við þekkjum að það er mjög varlega farið með rafmagnsmæla og hitaveitumæla í húsum til samanburðar.
Mig langaði rétt að koma inn á að þetta eru ótrúlegar skattahækkanir sem við erum að sjá á þessu ári. Ætli þetta séu ekki í fjárlögunum rúmlega 30 milljarðar, 31 milljarður eins og þetta stendur núna, svona eftir minni? Veiðigjöldin í sumar voru 7.500 milljónir og svo er komið að bílunum. Mig langar bara að spyrja hv. þingmann hvort við getum ekki talað um að það séu svolitlar árásir á bílaeigendur þessa dagana í þessum tveimur málum sérstaklega sem við erum að takast á við hér í þinginu, annars vegar kílómetragjaldið hér upp á 3,3 milljarða og síðan eigum við væntanlega eftir að ræða innan fárra daga betur um vörugjöldin sem koma fram og kom fram í ræðu hv. þingmanns, vörugjöld upp á 7.500 milljónir. Þetta eru 10.800 milljónir, tæpir 11 milljarðar, bara þessi tvö mál. Þetta eru miklar hækkanir. Er þetta ekki bara svolítil árás á bílaeigendur? Við vitum að við Íslendingar þurfum á bílum að halda. Það hafa náttúrlega verið miklar árásir hér í samfélaginu, sérstaklega hérna vestanmegin í höfuðborginni, á bíla, en við hin viljum halda í bílinn okkar. Eru þetta ekki bara árásir á bílaeigendur?