kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegi forseti. Jú, það er alveg óhætt að segja að það sé a.m.k. verið að vega allhressilega að bíleigendum. Þetta frumvarp sem við erum að ræða hér hefur ætíð verið kynnt sem tekjuhlutlaust frumvarp. Þannig voru þær hugmyndir kynntar, held ég, á síðasta kjörtímabili og ég er ekki frá því að þær hafi líka verið kynntar sem tekjuhlutlausar á síðasta þingi af þessari ríkisstjórn og kannski í þessari umræðu, ég skal ekki segja. En þetta er alveg dæmigert og ágætt að draga það fram að eitthvað sem var kynnt sem tekjuhlutlaust, bara einhver kerfisbreyting, endar samt í því að eiga að vera 3,3 milljarða kr. hækkun á sköttum. Þá er það ekki lengur tekjuhlutlaust, þá er það skattahækkun. Þetta er alveg skattahækkun og auðvitað er þetta árás á bíleigendur og vörugjöldin auðvitað líka sem við höfum ekki haft tök á að ræða en hefðu þurft að ræðast í þessu samhengi. Það þarf að ræða þetta mál í því samhengi líka, a.m.k. þannig að menn hafi heildarmyndina og geti lagt það niður fyrir sér þegar menn eru að ræða þetta stóra mál sem það er fyrir bifreiðaeigendur.
En af því að hv. þingmaður er áhugamaður um löggildingu á þessum mælum og þess háttar, þá dettur mér í hug þegar hann var hérna áðan að nefna að það eru kannski ekki bara mælarnir, sem eru auðvitað forsenda fyrir þessari skattlagningu samkvæmt þessu máli — maður fer kannski líka að velta fyrir sér: Fyrir hvað eru menn að borga? Fyrir hvers lags kílómetra eru menn að borga? Kílómetramælir mælir auðvitað bara ekna kílómetra, en væri ekki sanngjarnt af þeim sem eru að borga þann skatt, kílómetragjald, að gera kröfu um einhverja staðlaða kílómetra? Ég keyri hér í Vesturbænum, reyndar í holóttri Reykjavík eins og þetta er búið að vera en tökum dæmi af manni sem keyrir í Garðabæ, þar sem vegirnir eru voða fínir, versus maður úti á landi sem keyrir á ómalbikuðum vegum. (Forseti hringir.) Eru þetta sambærilegir kílómetrar? Mér finnst það líka svolítið áhugaverð spurning sem menn hafa kannski ekki rætt svo gjörla hér.