157. löggjafarþing — 45. fundur,  11. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[22:13]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Frábær punktur. Og þá skulum við ræða Útkinnina, Bárðardal, fyrir norðan og marga aðra vegi í sveitum landsins, sem eru náttúrlega gamlir hestavegir hálfgerðir, kannski ein og hálf breidd eins og við þekkjum í Útkinninni. Þetta fólk er að borga það sama. Það er að borga nákvæmlega sama fyrir að ferðast sína 10 km til að komast inn á þjóðveg 1, t.d. í Útkinninni. Bárðardalurinn er um 50 km langur að innsta bæ, Mýri í Bárðardal, af þjóðvegi 1, 46–47 kílómetrar ef ég man rétt. Þannig að það er svo margt í þessu og það sem er líka flækjustig í þessu, sem hv. þingmaður kom inn á áðan, er að það eru 29 flokkar í þessari gjaldskyldu sem er verið að boða hér. Það er verið að gera miklu flóknara kerfi heldur en við höfum almennt búið við varðandi bensínið og dísilinn, það voru bara einfaldir útreikningar og miklu betur staðið að hlutum. Þannig að hér er verið að flækja og það er verið að búa til meira flækjustig og vesen í kerfinu.