157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

Minnst látins fyrrverandi alþingismanns, Björns Dagbjartssonar.

[10:30]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Björn Dagbjartsson, fyrrverandi alþingismaður, lést í gær, þann 11. desember, á Landspítalanum, 88 ára að aldri.

Björn var fæddur í Álftagerði í Mývatnssveit 19. janúar 1937, sonur hjónanna Dagbjarts Sigurðssonar og Kristjönu Ásbjarnardóttur sem þar bjuggu. Björn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1959 og hélt eftir það utan til háskólanáms, fyrst til Þýskalands þar sem hann lauk námi í efnaverkfræði og síðar til Bandaríkjanna þar sem hann varð doktor í matvælaverkfræði. Framan af starfsferli sínum stundaði Björn Dagbjartsson einkum rannsóknir á sviði fiskiðnaðar og var forstjóri Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins frá 1974 til 1984.

Við alþingiskosningarnar í apríl 1983 var Björn í framboði á heimaslóðum fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Norðurlandskjördæmi eystra, varð varaþingmaður og tók svo ári síðar fast sæti á Alþingi þegar Lárus Jónsson, efsti maður listans, afsalaði sér þingmennsku. Björn sat aðeins þetta eina kjörtímabil á Alþingi, á fjórum löggjafarþingum alls.

Björn Dagbjartsson var um langt árabil framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og brautryðjandi í þróunarsamvinnu milli Íslands og ýmissa Afríkuríkja. Á árabilinu 2001 til 2005 var hann sendiherra Íslands í Mósambík, Suður-Afríku og Namibíu. Björn ritaði margt á sínum starfsferli um efna- og matvælafræði og einnig um verkefni á sviði þróunarsamvinnu.

Ég bið þingheim að minnast Björns Dagbjartssonar, fyrrverandi alþingismanns, með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]