Störf þingsins.
Frú forseti. Ég gæti vel eytt þessum ræðutíma mínum núna í að taka undir allt það sem hv. þingmaður sagði hér á undan. Ég ætla að fara samt aðra leið og í annað mál.
Virðulegi forseti. Leyniþjónusta danska hersins gaf nýverið út sitt árlega hættumat varðandi þær ógnir sem steðja að Danmörku. Í skýrslunni er fjallað um þá augljósu þróun að stórveldi setji sína hagsmuni framar samstarfi og samvinnu. Nýjasta dæmi slíks er þjóðaröryggisstefna Bandaríkjanna sem birt var nýlega og er allrar athygli virði. Danir meta það svo að Rússar álíti sig vera þátttakendur í átökum við NATO og séu sífellt að ganga lengra í ógnum í og við Danmörku. Fjölþáttaaðgerðir í formi netárása og skemmdarverka séu staðreynd. Þeir séu einnig sífellt að færa sig upp á skaftið varðandi beinar ógnir, svo sem brot á lofthelgi NATO-ríkja og siglingar herskipa í danskri lögsögu. Danir nefna líka ógn af Bandaríkjunum í fyrsta sinn og tengist það auðvitað umræðu fyrr á árinu um áhuga þeirra á Grænlandi en einnig þeirri orðræðu gagnvart Evrópu sem fram kemur í áðurnefndri þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna.
En hvað þýðir þetta allt fyrir Ísland? Jú, við verðum að vera með augun opin og þora að ræða varnar- og öryggismál opinskátt og hvaða áherslur eigi að vera hjá Íslendingum. Við eigum að undirbúa okkar borgaralegu stofnanir til að takast á við fjölþáttaógnir og tengja þennan undirbúning við þær ógnir sem við þekkjum svo vel, nýta okkur reynsluna sem er í kerfinu af því sem við köllum hefðbundna náttúruvá, og á sama tíma þær ógnir sem við sjáum raungerast sem afleiðingar loftslagsbreytinga. Þarna eru tækifæri í að tengja hlutina vel saman. Já, við þurfum að tengja saman alla þræðina, lög og reglur, stefnur, áætlanir sem mynda saman grunninn að þjóðaröryggi okkar Íslendinga. Þar eigum við hér á Alþingi að vera leiðandi.