157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

Störf þingsins.

[10:48]
Horfa

Lóa Jóhannsdóttir (M):

Frú forseti. Við þurfum að minna okkur á eitthvað sem virðist stundum gleymast. Ísland er frábært land, ekki bara fínt heldur einstakt á heimsvísu. Við erum þjóð sem hefur alla tíð verið ótrúlega stolt af uppruna sínum. Við segjum yfirleitt með brosi: Ég er Íslendingur. Þegar við hittum ferðamenn spyrjum við sjálfkrafa hvernig þeim líkar Ísland, eða „how do you like Iceland?, ekki af forvitni heldur af stolti. Við vissum að svarið yrði jákvætt því að við vissum í hjartanu að við byggjum á besta stað í heimi eða „stórasta landi í heimi“. En eitthvað hefur dofnað hjá okkur. Sjálfstraust okkar er ekki eins sýnilegt og áður. Þor okkar til að segja að við séum góð, sterk og skapandi þjóð hefur veikst og það er hættuleg þróun. Við erum bara tæplega 400.000 manns og frá landnámi og til dagsins í dag höfum við líklega ekki einu sinni náð 1,5 milljónum manns í heild. Samt höfum við áorkað hlutum sem stærri þjóðir ná ekki að óska sér. Það er ekki lítið afrek. Landið okkar er ótrúlegt; eldfjöll, jöklar, heitt vatn sem flæðir upp úr jörðinni, orka sem mörg ríki myndu óska sér að hafa, auðlindir sem gera okkur sjálfbær, náttúra sem heimsbyggðin dáist að. Þetta er ekkert sjálfgefið, þetta eru forréttindi. Við þurfum að rífa upp gamalt, heilbrigt, íslenskt stolt. Stoltið sem hvatti okkur til að byggja hér upp eitt öruggasta og besta samfélag heims. Stoltið sem lét okkur standa saman í erfiðleikum. Stolt sem fékk okkur til að trúa því að við værum stærsta land í heimi, ekki á kortinu heldur í hjartanu. Við erum einstök þjóð á einstökum stað. Ef við gleymum því og ef við leyfum þessari tilfinningu að dvína þá tapar enginn annar nema bara við. Ísland er frábært land og það er kominn tími til að við segjum það aftur upphátt, óafsakandi og með stolti. Áfram Ísland.