Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég vildi koma hér upp til að vekja athygli á því að það er nú helst einn flokkur sem er skýrastur með það að vilja gera út af við EES-samstarfið og það er Viðreisn, með því að ganga inn í hnignandi sambandsríki Evrópusambandsins. En þar á bæ eru menn augljóslega að þyrla upp ryki í sínu eina máli sem er að framselja fullveldi okkar til Evrópusambandsins. Það er gott og vel, mögulega er það til þess að forðast umræðu um meiri háttar kosningasvik flokksins sem nú standa fyrir dyrum í 11 milljarða kr. skattahækkun á ökumenn, sem á að samþykkja hér fyrir jól. Ökumenn eru almenningur og við erum ekki hrædd við að ræða hagsmuni almennings, líka í sambandi við EES-samstarfið. Ég hef sagt að innflytjendum hafi fjölgað of hratt og ég talaði fyrir því hér í þinginu í gær að ef þetta héldi svona áfram þyrftum við auðvitað að skoða það hvort við beittum okkar sérstöku ákvæðum, sem við börðumst fyrir innan EES-samningsins, til að ná stjórn á þeirri þróun. Og svo sagði ég að ef mönnum leyfðist það ekki og innflytjendum væri að fjölga hér, til framtíðar og áratugum saman, mun hraðar, meira en tvöfalt hraðar, en Íslendingum, þá kynni að koma til þess að við myndum meta málið þannig að hagsmunum okkar væri betur borgið utan bandalags sem neyðir okkur inn í slíka þróun. Auðvitað segi ég það fullum fetum.
Ef maður ræðir hagsmuni íslensks almennings gagnvart þessari þróun í innflytjendamálum — hvort sem það er út frá þjóðmenningu, tungumáli, launaþrýstingi, af því að menn nefna verkalýðshreyfinguna, húsnæðismarkaði, skólakerfi, leikskólakerfi — og segist vera tilbúinn til að gæta þessara hagsmuna íslensks almennings er það þá eina svarið hjá fólki að fara í hræðsluáróður um að þar með sé maður að tala um að fórna og varpa fyrir róða einhverjum heilögum réttindum Íslendinga, sem eru fín réttindi og góð og EES-samningurinn veitir okkur þau? Það er enginn að tala fyrir því að ganga út úr EES-samstarfinu, en við erum að tala fyrir því að meta framtíðarhagsmuni íslensku þjóðarinnar. Ég ætlaði að koma að frekari þáttum í þessu máli en vísa því alfarið á bug hvernig hv. þingmenn Viðreisnar hafa verið að ræða þetta mál hér í dag.