157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[11:14]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Í lok þessa þingvetrar stöndum við frammi fyrir ríkisstjórn sem virðist telja að eina lausnin í öllum málum sé að hækka skatta. Í hvert sinn sem áskorun kemur upp þá er svarið það sama, að flækja kerfin, stækka báknið og seilast dýpra í vasa heimilanna og atvinnulífsins. Kílómetragjaldið er nákvæmlega þannig mál. Þetta er ekki umbót, þetta er skattahækkun sett fram sem tæknileg breyting til að láta hana líta betur út. Við féllum áður frá áformum um kílómetragjald á öll ökutæki. Við völdum að halda okkur við einfalt og skiljanlegt kerfi eldsneytisgjalda og tryggja tekjur með öðrum hætti. Nú kemur ríkisstjórnin aftur með sama gamla planið þrátt fyrir að engin sannfærandi heildarmynd liggi fyrir um áhrifin á fólk, fyrirtæki, ferðaþjónustu og landsbyggðina. Þvert á móti hefur samráð verið takmarkað og gagnrýni verið ýtt til hliðar. Það er ekki ábyrgt, það er hrokafullt.

Núverandi kerfi er skýrt og gegnsætt. Skatturinn er greiddur við dælu. Kílómetragjaldið býr hins vegar til meira flækjustig sem eykur kostnað, kallar á skráningar, eftirlit og endalausar leiðréttingar. Það mun skapa óvissu, deilur og kostnað sem lendir ekki á ríkisstjórninni sjálfri heldur á fólkinu og fyrirtækjunum í landinu. Og áhrifin verða raunveruleg. Heimilin munu finna fyrir þessu í daglegum akstri til vinnu, í skóla og íþróttastarf. Landsbyggðin mun bera þyngstu byrðarnar vegna lengri vegalengda og færri valkosta. Smærri fyrirtæki, verktakar og sveitarfélög munu finna fyrir þessu í sínum rekstri. Ferðaþjónustan, sem er ein helsta útflutningsgrein þjóðarinnar nú og til lengri tíma litið, mun fá högg þegar bílaleiga og ferðalög um landið verða dýrari og flóknari. Það dregur úr dreifingu ferðamanna, dregur úr tekjum á landsbyggðinni og veikir samkeppnishæfni Íslands á sjálfu verðmætasköpunarhaustinu. Þetta gerist á sama tíma og ríkisstjórnin hækkar önnur gjöld og gerir bílakaup dýrari. Þetta er hluti af heildarmynstri. Það kemst einfaldlega ekkert annað að hjá þessari ríkisstjórn en að hækka skatta, hækka álögur á fólkið í landinu. Við eigum að gera hið gagnstæða, einfalda skattkerfið, gera það fyrirsjáanlegt, hvetja til fjárfestinga, atvinnusköpunar og orkuskipta með skynsamlegum hætti, ekki með nýjum reikningum, nýjum skráningum og nýju eftirliti.

Frú forseti. Heimilin í landinu og atvinnulífið mega ekki bera kostnaðinn af skattagleði ríkisstjórnarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn hefur reynt allt til að ná fram skynsamlegri niðurstöðu í þessu máli en það er augljóst að ríkisstjórnin ætlar sér ekki að taka sönsum. Henni dettur ekkert í hug nema hækka skatta, sama hversu skaðlegar afleiðingarnar verða. Við Sjálfstæðismenn ætlum að standa með fólkinu í landinu sem á eftir að finna fyrir þessari óstjórn af fullum þunga.

Að lokum segi ég þetta: Ef ríkisstjórnin keyrir þessa skattahækkun í gegn mun hún bera ábyrgðina. Við skulum skila skömminni þangað sem hún á heima, til ríkisstjórnarinnar. Þar á skömmin að liggja, ekki hjá þeim sem reyndu að verja almenning. Við í Sjálfstæðisflokknum getum horft framan í kjósendur okkar og vitað að við stóðum í lappirnar gegn þessu skaðlega frumvarpi. Skömmin er ríkisstjórnarinnar og ég skila skömminni til hennar.