kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Það mál sem hér hefur verið til umræðu undanfarna daga og varðar nýtt skattkerfi, kílómetragjald á bifreiðar, hefur örugglega verið til umræðu í yfir áratug, a.m.k. í fjármálaráðuneytinu, hugmynd að þessu nýja kerfi. Það eru margar ástæður fyrir því að þessu kerfi hefur ekki verið komið á með þeim hætti sem hér er lagt til. Það er ástæða fyrir því. Margra ára yfirlega hefur tafið það að málið komi fram og verði afgreitt eins og ætlunin er að afgreiða þetta mál núna. Fyrir tveimur árum var kílómetragjaldið lagt á notkun rafmagns- og vetnisbíla, eins og menn þekkja, og þannig fengin nokkur reynsla á kerfið. Það er skemmst frá því að segja að kerfið hefur ekki verið hnökralaust svo að ekki sé dýpra í árinni tekið. Kerfið hefur kannski ekki enn þá reynt á þanþol einstaklinga, á mann sem rekur einn rafmagnsbíl og þarf að skrá þessi gjöld og fær á sig áætlun; margir hverjir á nýlegum bílum sem ekki fara í skoðun fyrr en eftir nokkur ár og fá þá kannski álagningu aftur í tímann. Það hefur því kannski ekki reynt á þanþolið þarna enn þá. En mörg fyrirtæki hafa ekki farið varhluta af göllum á þessu nýja fyrirkomulagi við innheimtu skatta. Hann hefur þó ekki ratað sérstaklega í fréttir, þessi daglegi barningur sem sum fyrirtæki hafa þurft að standa í gagnvart Skattinum vegna leiðréttinga á ofgreiddu kílómetragjaldi og öðrum framkvæmdaratriðum sem ekki hefur enn þá verið fundin lausn á í þessu kerfi. Sá vandi hefur hins vegar verið rækilega kynntur þingmönnum við meðferð þessa máls, bæði með umsögnum og fjölmörgum gestakomum fyrirtækja sem hafa reynslu af því að starfa í þessu kerfi og segja farir sínar ekki sléttar og hafa varað við því að stækka þetta kerfi með þeim hætti sem þetta frumvarp kveður á um, a.m.k. um sinn. Við höfum heyrt reynslusögur af þessu kerfi sem höktir þannig að það munar um þetta í rekstri fyrirtækja og við höfum svo sannarlega fengið ábendingar um það að flýta okkur hægt í því að stækka þetta kerfi.
Miðflokkurinn hefur tekið undir þessi aðvörunarorð. Miðflokkurinn leggur til í þessu máli að ríkisstjórnin taki málið aftur til skoðunar og leggi það fram með nokkrum breytingum og gefi því góðan tíma í þinglegri meðferð en að það verði ekki afgreitt núna. Þetta kemur fram í nefndaráliti og sérstakri breytingartillögu frá nefndarmanni Miðflokksins í hv. efnahags- og viðskiptanefnd; sem sagt að þetta mál verði ekki afgreitt núna seint á aðventunni og undir pressu frá fjárlögum. Þessi tillaga verður borin undir atkvæði í þingsal og hún verður felld. Til vara, það er nú gott að hafa varaplan, hefur Miðflokkurinn lagt til að gildistöku þessa máls verði frestað. Sú breytingartillaga verður líka felld. Miðflokkurinn hefur lagt til að fresta málinu um eitt ár, þ.e. að málið verði afgreitt hér en með gildistöku eftir eitt ár. Ég verð að segja það, virðulegur forseti, að það er ekki langur tími, langur fyrirvari, fyrir fyrirtæki og heimili í landinu til að bregðast við stórfelldri nýrri kerfisbreytingu á skattasviðinu og við skattinnheimtu.
Ég ætla ekki að fullyrða að þetta mál, afgreiðslutími þess og fyrirvari gildistökuákvæðis í þessu máli, sé einsdæmi, ég þori ekki að fullyrða það. En ég þori að fullyrða að það er fáheyrt að jafn umfangsmikilli kerfisbreytingu við innheimtu skatta sé gefinn jafn skammur tími og gert er ráð fyrir, að slík skattalagabreyting og skattkerfisbreyting taki gildi nánast um leið og hún er samþykkt á Alþingi, en gert er ráð fyrir að málið taki gildi um áramótin. Það er fáheyrt, óheppilegt og ómálefnalegt að vísa um þetta atriði til þess að málið hafi verið í umræðu lengi og jafnvel í mörg ár, eins og ég hef nefnt, vegna þess að fyrirtækin í landinu og almenningur eiga ekki að þurfa að hegða sér eftir fyrirhuguðum lagabreytingum heldur eftir gildandi lögum á hverjum tíma. Það er ekki nema sanngjarnt, eðlilegt og málefnalegt að svona skattkerfisbreyting, og í raun kerfisbreyting á hvaða sviði sem er, sé leidd í lög en taki gildi að einhverjum málefnalegum og hóflegum tíma liðnum en ekki að nokkrum dögum liðnum eftir afgreiðslu málsins á Alþingi. Það er afstaða Miðflokksins í þessu; að gefa fyrirtækjum tækifæri til þess að aðlaga sig að breyttum lögum, ekki að breyttum hugmyndum stjórnvalda á hverjum tíma heldur að breyttum lögum. Það er ekki gert í þessu máli.
Þetta mál verður að líkindum samþykkt hér undir pressu frá fjárlögum, seint á aðventunni og eftir stutta þinglega meðferð. Það er miður. Miðflokkurinn mun ekki styðja það og hefur komið þeim sjónarmiðum sínum á framfæri, bæði hvað varðar tæknilegar útfærslur í þessu máli, og til vara, sem auðvitað ætti ekki að þurfa að gera, að gildistökunni verði frestað. Ég hef jafnvel grun um að þingmenn meiri hlutans styðji slíka tillögu í hjarta sínu af því að menn vita að það er ekki boðlegt að kasta svona breytingum fram í atvinnulífið og heimilin í landinu með þeim fyrirvara sem menn eru að gera.
Einhverjir hljóta að spyrja sig af hverju lífið liggi á að samþykkja þetta mál, einkum og sér í lagi þegar þetta mál hefur verið kynnt í umræðunni, fyrir þá sem vilja vísa til umræðna um málið í mörg ár, sem tekjuhlutlaust mál; að það eigi ekki að breyta neinu fyrir nokkurn mann. Það sé bara verið að fella niður vörugjöld af eldsneyti og farið að kalla það kílómetragjald; tekjuhlutlaust, enginn eigi að verða var við þessa breytingu. Svo rennur það upp fyrir mönnum að þetta er ekki tekjuhlutlaust mál. Það er það ekki. Það kemur í ljós að málið er skattahækkunarmál, það felur í sér skattahækkun og leggst til viðbótar við stórfellda hækkun skatta, sem er líka til umræðu á þessum sama tíma, með tillögu um hækkun vörugjalda á bifreiðar. Ég spyr aftur: Af hverju liggur lífið á? Ástæðan fyrir því eru fjárlögin. Boginn þar hefur verið spenntur svo hátt að fjárlögin verða óviðráðanleg nema kílómetragjaldið verði afgreitt núna og taki gildi þegar í stað. Það má engan tíma missa við að hækka skatta á almennt fólk. Fyrir það stendur þessi ríkisstjórn og lætur svo sannarlega verkin tala; hún byrjaði á því með veiðigjöldum í sumar sem hafa snert venjulegt fólk, heldur hér áfram með hækkun skatta á bifreiðaeigendur og hefur lofað ferðaþjónustunni einhverjum pakka og plani þegar kemur að því að hækka sérstaka skatta á ferðaþjónustuna. Þetta er í boði þessarar ríkisstjórnar. Hækkun skatta á almennt fólk og Miðflokkurinn mun ekki styðja það.