úrvinnslugjald.
Virðulegi forseti. Frá fagurfræðilegu sjónarmiði þá er þetta frumvarp í algerum hágæðaflokki. Ég hvet þingheim til að lesa og kynna sér mjög vandlega bls. 3–117 í þessu frumvarpi og gaumgæfa töflurnar þar.
Ég vil þakka Alþingi, forseta Alþingis og hæstv. umhverfis- og samgöngunefnd fyrir liðlegheitin við að koma þessu á dagskrá og ætla að taka þetta fyrir svona með tiltölulega skömmum fyrirvara, öllu seinna en áætlað var, af því að það skiptir máli að þetta taki gildi fyrir áramót.
Í grunninn snýst þetta frumvarp um að skýra ákvæði um skilagjald á ökutæki ásamt því að auka áreiðanleika og virkni úrvinnslugjaldsins og þá um leið framlengdrar framleiðendaábyrgðar á þeim vöruflokkum sem mælt er fyrir um í lögum um úrvinnslugjald. Þetta eru breytingar á lögunum sem miða að því að þau séu í samræmi við breytingar sem hafa verið gerðar á tollskrá með auglýsingum um breytingu á viðauka I við tollalög. Auk þess erum við að leggja til uppfærslur á reiknilíkani viðauka XVIII þannig að bætt sé inn fleiri möguleikum um meginsöluumbúðir fyrir tiltekin tollskrárnúmer og hlutfallstölur lagfærðar þannig að álagning úrvinnslugjalds á umbúðir sé sannarlega á þær vörur sem eiga að bera úrvinnslugjald á hverjum tíma og nái líka til flutningsumbúða í tilvikum þegar vörur eru ekki seldar í sérstökum söluumbúðum eða þá að söluumbúðir beri ekki úrvinnslugjald líkt og í tilviki skilagjaldskyldra drykkjarvöruumbúða. Að öðru leyti vísast til greinargerðar frumvarpsins.
Ég legg til að þessu ágæta frumvarpi verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.