157. löggjafarþing — 46. fundur,  12. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[11:45]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Arna Lára Jónsdóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd efnahags- og viðskiptanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2026.

Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Nefndin fjallaði um verðlagsuppfærslu krónutöluskatta, en í frumvarpinu er lögð til hækkun á kolefnisgjaldi, olíugjaldi og kílómetragjaldi vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða, almennu og sérstöku bensíngjaldi, bifreiðagjaldi og gjaldi af áfengi, tóbaki og nikótínvörum. Hækkunin er 3,7% í samræmi við verðlagsforsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2026. Miðað er við áætlaða tólf mánaða breytingu á vísitölu neysluverðs árið 2025 sem er 3,7% samkvæmt þjóðhagsspá Hagstofu Íslands. ?Í umsögnum sem bárust nefndinni kom fram það viðhorf að krónutöluskattar ættu ekki að hækka umfram 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Meiri hlutinn tekur undir rökstuðning fjármála- og efnahagsráðuneytis sem fram kemur í minnisblaði þess. Þar segir að umrædd gjöld muni með þessu halda verðgildi sínu milli ára í stað þess að rýrna að raunverði. Um sé að ræða aðgerð stjórnvalda á tekjuhlið ríkisfjármála sem miði að því að draga úr þenslu og verðbólgu.

Þá fjallaði nefndin um skrásetningargjald í opinbera háskóla, en í 48. gr. frumvarpsins er lagt til að að skrásetningargjald í opinbera háskóla hækki úr 75.000 kr. í 100.000 kr. fyrir hvern nemanda á ársgrundvelli. Gjaldið var síðast hækkað árið 2013 úr 60.000 kr. í 75.000 kr. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti hafi borist bréf frá ríkisháskólum í maí um hækkun skrásetningargjalds. Þar kom fram að skrásetningargjald nægði ekki fyrir þeim útgjöldum sem því er ætlað að standa undir samkvæmt bókhaldi háskólanna. Í umsögnum sem nefndinni bárust var þessari hækkun mótmælt.??Meiri hlutinn vísar til umfjöllunar fjármála- og efnahagsráðuneytis í minnisblaði. Þar kemur fram að hafa beri í huga að hækkun þessi feli í sér heimild að lögum og hún ein og sér leiði ekki til þess að skrásetningargjöld í opinbera háskóla hækki. Hver opinber háskóli um sig gefur út gjaldskrá í samræmi við lög um opinbera háskóla. Meiri hlutinn áréttar rökstuðning ráðuneytisins um að verði skrásetningargjald í opinberum háskólum ekki hækkað í samræmi við verðlagsþróun frá árinu 2013 sé hætta á að fjárveitingar til háskólanna sem ætlaðar eru til kennslu og rannsókna renni í of miklum mæli til umsýslu eins og skráningar og þjónustu við nemendur. Það gæti leitt til þess að dregið verði úr gæðum kennslu og rannsókna. Að lokum tekur meiri hlutinn undir með OECD að Ísland þurfi að huga sérstaklega að fjárfestingu á háskólastigi til að tryggja að íslenskir háskólar standi jafnfætis háskólum í öðrum aðildarríkjum hvað gæði, aðgengi og alþjóðlega samkeppnishæfni varðar, sbr. skýrslu stofnunarinnar sem heitir á ensku Education at a Glance, frá árinu 2025.

Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar sóknargjöld. Í 19. gr. frumvarpsins er lagt til að við lög um sóknargjöld o.fl. bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða þess efnis að föst krónutala sóknargjalda verði 1.133 kr. á mánuði árið 2026 fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári. Undanfarin ár hafa sóknargjöld verið ákvörðuð með bráðabirgðaákvæði sem kveður á um fasta krónutölu sóknargjalda. Á 155. löggjafarþingi ákvað meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar að leggja til hækkun á sóknargjaldi og varð gjaldið 1.221 kr. Bráðabirgðaákvæðið samkvæmt frumvarpi þessu hljóðar því upp á lækkun gjaldsins um 7,2%. Meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar hefur undanfarin ár lagt til hækkanir á sóknargjöldum. Sömuleiðis hefur því verið beint til fjármála- og efnahagsráðherra og dómsmálaráðherra að huga nú þegar að varanlegri útfærslu á tilhögun sóknargjalda í stað ákvarðana í formi bráðabirgðaákvæða ár hvert. Að teknu tilliti til þess að varanleg útfærsla liggur enn ekki fyrir leggur meiri hlutinn til breytingu á 19. gr. frumvarpsins þess efnis að sóknargjald haldist óbreytt milli ára og verði 1.221 kr.

Í öðru lagi er lögð til breyting er varðar innviðagjald á skemmtiferðaskip í millilandasiglingum. Í 49. gr. frumvarpsins segir að við lög um gistináttaskatt og innviðagjald bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða sem kveði á um að innviðagjald sem skemmtiferðaskip í millilandasiglingum greiða fyrir hvern farþega á meðan skip dvelur í höfn hér á landi eða annars staðar á tollsvæði ríkisins skuli vera 2.000 kr. árið 2026. Hér sé því um að ræða 500 kr. lækkun á innviðagjaldi í eitt ár. Innviðagjald fyrir skemmtiferðaskip í millilandasiglingum kom fyrst til framkvæmda með lögum nr.?140/2024?sem tóku gildi 1. janúar 2025. Ári áður hafði þeim verið gert að greiða gistináttaskatt sem var 1.000 kr., sbr. lög nr.?102/2023. Í umsögnum sem nefndinni bárust voru ýmis sjónarmið reifuð sem snerta innviðagjaldið. Meðal annars var tekið fram að innviðagjaldið hefði borið brátt að og það hefði leitt til samdráttar í bókunum. Nefndin fjallaði talsvert um innviðagjaldið og hafði viðhorf umsagnaraðila til hliðsjónar. Að mati meiri hlutans var innviðagjaldið ákveðið of hátt sem hafi haft neikvæð áhrif í för með sér. Meiri hlutinn fellst því á tillögu í frumvarpinu um lækkun innviðagjalds á skemmtiferðaskip í millilandasiglingum. Aftur á móti telur hann að rétt sé að lækka gjaldið enn frekar en kveðið er á um. Að því gættu leggur meiri hlutinn til að nýtt ákvæði bætist við frumvarpið sem kveði á um breytingu á 2. mgr. 3. gr. a laga um gistináttaskatt og innviðagjald þess efnis að innviðagjald skuli vera 1.600 kr. fyrir hvern farþega fyrir hvern byrjaðan sólarhring sem skip dvelur á tollsvæði ríkisins. Með þessu fellur meiri hlutinn frá því fyrirkomulagi að lækkun gjaldsins verði takmörkuð með bráðabirgðaákvæði við árið 2026.

Þá er í þriðja lagi lögð til breyting er varðar tollfrelsi skipa í innanlandssiglingum. ?Í 22. gr. laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld o.fl., nr. 102/2023, var kveðið á um breytingu á 6. gr. tollalaga þess efnis að skemmtiferðaskip, sem skráð eru erlendis en notuð í innanlandssiglingum hér við land í allt að fjóra mánuði á ári á hverju tólf mánaða tímabili, njóti ekki lengur tollfrelsis. Meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar lagði til á 155. löggjafarþingi breytingartillögu við meðferð frumvarps þess sem varð að lögum nr. 140/2024?þess efnis að gildistöku 22. gr. laga nr. 102/2023 yrði frestað um eitt ár, eða fram til 1. janúar 2026. ?Nefndinni bárust umsagnir við meðferð frumvarpsins sem nú er til umfjöllunar þar sem á ný var hvatt til þess að 22. gr. laga nr.?102/2023?tæki ekki gildi um næstu áramót. Umsagnaraðilar þessir höfðu ólíka aðkomu að skipum í innanlandssiglingum. Meðal annars var um að ræða sveitarfélög, hafnasambönd, ferðaþjónustuaðila og hagsmunasamtök. Tiltóku þeir að skip þessi hefðu gífurlega jákvæð fjárhagsleg áhrif á smærri hafnir á landsbyggðinni og aðra þjónustu í nágrenni. Auk þess væri það kostur hversu vel þessi skip dreifðu ferðamönnum um landið. Jafnframt var bent á að fyrirhugað afnám tollfrelsis hefði haft í för með sér mikinn samdrátt í komum þessara skipa til landsins sem endurspeglaðist í bókunarstöðu fyrir komandi ár. Þá fjallaði nefndin um þau sjónarmið sem fram hafa komið um að í tollfrelsinu felist ríkisaðstoð og um skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum. ??Í tollfrelsinu felst að skip þarf ekki að greiða aðflutningsgjöld af þeim vörum sem koma með skipi hingað til lands, til að mynda af ákveðnum matvælum, áfengi og tóbaki. Skip nýtur jafnframt tollfrelsis af öllum þeim vörum sem keyptar eru til nota fyrir farþega og áhöfn í þá fjóra mánuði sem það dvelur hér á landi. Þeim ber þó að greiða virðisaukaskatt og skrá sig á virðisaukaskattskrá. Meiri hlutinn telur sem stendur og með hliðsjón af framangreindu ótímabært að afnema tollfrelsi skipa í innanlandssiglingum. Meiri hlutinn beinir því til fjármála- og efnahagsráðherra að leita leiða til að finna varanlega lausn á þessu máli. Nauðsynlegt sé að lausnin taki í ríkum mæli mið af landfræðilegri stöðu Íslands.

Að lokum er í fjórða lagi lagðar til breytingar er varða lög um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., nr. 29/1993. Nefndinni barst minnisblað frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, dagsett 17. október 2025, þar sem lagðar voru til breytingar á lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. Þar kemur fram að lagt sé til að gerðar verði breytingar á vörugjaldi sem lagt er á ný ökutæki við innflutning eða framleiðslu. Jafnframt segir að með tækniframförum og orkuskiptum hafi skráð losun nýrra ökutækja minnkað verulega á undanförnum árum. Breytingunum sé ætlað að mæta þeirri þróun með því að lækka viðmiðunarmörk losunar svo að sá hluti vörugjalda sem tengdur er losun færist neðar. Þá sé breytingunum ætlað að einfalda vörugjaldakerfið og breikka skattstofn vörugjalds, m.a. með fækkun á undanþágum frá vörugjöldum, en tekjur af vörugjaldi á ökutæki hafi dregist hratt saman undanfarin ár. Breytingar þessar eigi að efla hvata til kaupa á umhverfisvænum ökutækjum, þ.m.t. hreinorkuökutækjum, og þannig stuðla að áframhaldandi framgangi orkuskipta í samgöngum. Jafnframt sé horft til þess að lágmarka áhrif breytinganna á heimili landsins og verðbólgu.

Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2026?kemur fram að ólögfestar breytingar vegna endurskoðunar á skattlagningu ökutækja og eldsneytis séu 7,5 milljarðar kr. Breytingartillögum samkvæmt minnisblaðinu er ætlað að mæta þeirri tekjuþörf ríkisins og styðja um leið við markmið stjórnvalda um áframhaldandi orkuskipti í samgöngum. Í minnisblaðinu er fjallað um lækkun á tekjum ríkissjóðs vegna fjölgunar umhverfisvænna og sparneytinna ökutækja. Til að mynda er bent á að frá og með fjármálaáætlun fyrir árin 2023–2027 hafi verið gert ráð fyrir því að auka eigi þær tekjur svo að þær nái aftur 1,7% af vergri landsframleiðslu sem var meðaltal áranna 2010–2017.

Meiri hlutinn fjallaði töluvert um umrætt minnisblað og bárust umsagnir þar sem fram komu ýmis sjónarmið. Meiri hlutinn taldi rétt að bregðast við ákveðnum ábendingum og leggur því til nokkrar breytingar á tillögum ráðuneytisins úr fyrrgreindu minnisblaði.

Í 2. málslið 1. mgr. 3. gr. laganna segir að vörugjald skuli ekki vera samanlagt meira en 65% á hvert ökutæki. Í minnisblaði ráðuneytisins er ekki lagt til að framangreint hámark vörugjalds hækki. Fyrir vikið munu breytingar á losunarviðmiðum koltvísýrings hafa óveruleg eða engin áhrif á vörugjöld ökutækja sem eiga það sameiginlegt að vera annars vegar með mestu losun koltvísýrings og hins vegar dýrust. Hið gagnstæða gildir aftur á móti um tengiltvinnbifreiðar sem eru umtalsvert umhverfisvænni, hagnýtari og eftirsóttari af heimilum, fjölskyldum og ökutækjaleigum í landinu. Meiri hlutinn telur því rétt að endurskoða tillöguna sem fram kemur í minnisblaðinu varðandi hækkun á hinu sérstaka vörugjaldi, sem nánar verður vikið að, og hámarki vörugjalda samkvæmt 1. mgr. 3. gr. laganna. Að því gættu leggur meiri hlutinn til að hámark vörugjalda verði hækkað um 5 prósentustig og verði þar af leiðandi 70%.

Í c- og d-lið er lögð til lækkun á losunarviðmiðum koltvísýrings ökutækja en skatthlutfall vörugjalds á ökutæki tekur mið af þeim. Með þessu eru losunarviðmið ökutækja sem ráða skatthlutfalli vörugjalds á ökutæki hert. Í minnisblaði ráðuneytisins kemur fram að á undanförnum árum hafi skráð losun bifreiða farið sífellt lækkandi og þar með það vörugjald sem greitt er af hverri bifreið. Með því að lækka losunarviðmið mun vörugjaldið fylgja þeirri þróun sem stafar af tækniframförum undanfarinna ára og vera í samræmi við þær framfarir. Tillögu þessari er ætlað að hvetja enn frekar til orkuskipta. Mikil þróun hefur átt sér stað í ökutækjaframleiðslu í Evrópu vegna aukinnar kröfu um minni losun gróðurhúsalofttegunda. Sömuleiðis leggur meiri hlutinn til að prósentutölum í 2. og 3. tölulið 1. mgr. 3. gr. verði breytt til samræmis við 1. tölulið málsgreinarinnar.

Í 3. mgr. 3. gr. laganna er kveðið á um sérstakt vörugjald sem lagt er á alla nýja fólksbíla og önnur vélknúin ökutæki með skráða losun koltvísýrings, sem ekki eru sérstaklega tilgreind í tiltekna undirflokka. Vörugjald þetta er 5%. Ákvæðið var lögfest með lögum nr.?129/2022, um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2023, til að mæta tekjutapi ríkissjóðs, m.a. vegna þeirra breytinga sem uppi væru vegna orkuskipta í samgöngum og þess kostnaðar ríkissjóðs sem hlytist af vegakerfinu. Í minnisblaði ráðuneytisins er lagt til að hið sérstaka vörugjald verði hækkað í 15%. Meiri hlutinn tekur fram í þessum efnum að lækkun á losunarviðmiðum koltvísýrings ökutækja hefur sérstaklega áhrif á tengiltvinnbifreiðar sökum þess að þær falla utan losunarviðmiða nú. Að teknu tilliti til þessa og fyrirhugaðra breytinga á WLTP-prófunaraðferðinni gagnvart tengiltvinnbifreiðum telur meiri hlutinn ekki rétt að leggja til jafn mikla hækkun og kveðið er á um í minnisblaðinu. Fyrir vikið leggur meiri hlutinn til að hið sérstaka vörugjald í 3. mgr. 3. gr. laganna verði 10%.

Í h-lið 1. mgr. 4. gr. laganna kemur fram að dráttarvélar eru undanþegnar vörugjöldum. Í minnisblaði ráðuneytisins er lagt til að h-liður verði afmarkaður nánar og færður til samræmis við tækniflokkun ökutækja. Þar kemur fram tillaga um að undanþágan takmarkist við dráttarvélar í ökutækjaflokkum T1 og T2 í ökutækjaskrá. Þessir flokkar eru skilgreindir á grundvelli tæknilegra viðmiða í reglugerð nr. 846/2016, um breytingu á reglugerð nr. 822/2004, um gerð og búnað ökutækja. Jafnframt eru sett þau skilyrði að dráttarvélin falli undir vörulið 8701 í tollskrá. Í umsögnum sem nefndinni bárust um þennan lið komu fram rök fyrir nauðsyn T3-dráttarvéla í landbúnaði. Með þessu myndu leggjast vörugjöld á T3-dráttarvélar. Bent var á að dráttarvélar í flokki T3 eru fjór- og sexhjól sem eyða langtum minna eldsneyti en aðrar stærri dráttarvélar eða tæki sem notuð yrðu í staðinn og myndu vinna gegn markmiðum um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Þá séu enn sem komið er ekki á markaði hreinorkuökutæki sem þjónað gætu sama tilgangi og dráttarvélar í flokki T3. Drægni umræddra hreinorkutækja nú sé til að mynda umtalsverð minni sem henti afar illa til landbúnaðarnota. Meiri hlutinn fellst á framangreind rök og leggur til þá viðbót við tillögu ráðuneytisins að dráttarvélar í ökutækjaflokknum T3 verði jafnframt áfram undanþegnar vörugjöldum.

Í l-lið 1. mgr. 4. gr. laganna kemur fram sérstök undanþága fyrir sérsmíðaðar keppnisbifreiðar og keppnisbifhjól sem ætluð eru til nota í skipulögðum keppnum og æfingum á vegum samtaka akstursíþróttamanna. Í minnisblaði ráðuneytisins er lagt til að umræddur stafliður falli brott. Markmiðið með þeirri breytingu er m.a. að auka samræmi við umhverfismarkmið og stuðla að jafnræði og einfalda framkvæmd. Í umsögnum sem nefndinni bárust var þessari tillögu mótmælt. Bent var t.d. á að undanþágan hefði skipt sköpum við að fá nýrri, öruggari og öflugri keppnistæki til landsins. Jafnframt hefði hún stuðlað að jafnara aðgengi að akstursíþróttum og auðveldað ungu fólki að taka þátt í íþróttinni. Í minnisblaði ráðuneytisins er rakið að framkvæmd undanþágunnar hefur reynst flókin og leitt til ágreiningsmála. Auk þess hefur eftirlit með framkvæmdinni reynst vandasamt. Meiri hlutinn fellst á að ástæða sé til að huga sérstaklega að vörugjöldum sem leggjast á sérsmíðaðar keppnisbifreiðar og keppnishjól. Að sama skapi telur meiri hlutinn efni til að skerpt verði á skilyrði fyrir umrædd ökutæki og hefur hann þá í huga að framkvæmdin að þessu leyti hefur verið flókin. Leggur meiri hlutinn því til að við lögin bætist ný grein, 3. gr. a, sem kveði á um að ökutæki þessi njóti 500.000 kr. afsláttar af vörugjöldum samkvæmt 1. mgr. 3. gr. laganna. Þá verða sett skilyrði fyrir afslættinum í þremur töluliðum og viðurlagaákvæði.

Meiri hlutinn leggur til breytingu á á orðalagi p-liðar 1. töluliðar 1. mgr. 4. gr. laganna til samræmis við minnisblað ráðuneytisins. Lagt er til að öll skráningarskyld vélknúin ökutæki sem falla undir skilgreiningu 43. töluliðar 1. mgr. 3. gr. umferðarlaga sem eingöngu eru knúin metani, rafmagni eða vetni skuli vera undanþegin vörugjaldi. Markmiðið er að styðja markvisst við orkuskipti í samgöngum með skýrum og almennum hvata, í samræmi við markmið stjórnvalda í loftslagsmálum.

Þá leggur meiri hlutinn til breytingu á skattprósentu þeirra tilteknu ökutækja sem falla undir 2. og 3. tölulið 1. mgr. 4. gr. laganna til samræmis við minnisblað ráðuneytisins. Annars vegar er lögð til hækkun úr 13% í 20% á þau ökutæki sem falla undir 2. tölulið, sem eru einkum ýmiss konar vinnuvélar og ökutæki til sérhæfðra nota undir 5 tonnum að leyfðri heildarþyngd. Hins vegar er lögð til hækkun úr 30% í 40% á þau ökutæki sem falla undir 3. tölulið, en þar er einkum um að ræða minni hópferðabifreiðar, bifhjól, fjórhjól og önnur vélknúin ökutæki sem ekki eru sérstaklega tilgreind annars staðar í lögunum. Hækkun þessi er nauðsynlegur liður í því að tryggja að tekjur ríkissjóðs af gjöldum á ökutæki og eldsneyti nái því hlutfalli af vergri landsframleiðslu sem að er stefnt.?

Vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar um breytingartillögur meiri hlutans til samræmis við minnisblað ráðuneytis sem hafa það markmið að einfalda og samræma álagningu vörugjalds.

Að lokum eru lagðar til minni háttar eða lagatæknilegar breytingar sem þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar.

Meiri hluti nefndarinnar lagði líka fram framhaldsnefndarálit sem ég ætla að fara hér yfir líka.

Nefndin fjallaði um málið að nýju tveimur dögum eftir að það var afgreitt til 2. umræðu og fékk á sinn fund fulltrúa frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Ástæða þess var að fjármála- og efnahagsráðuneyti sendi nefndinni minnisblað, dagsett 4. desember. Þar komu fram tvær breytingartillögur við frumvarpið til viðbótar, sem ráðuneytið hafði unnið í samráði við hagaðila og óskað eftir að nefndin gerði að sínum.

Fyrir vikið leggur meiri hlutinn til í fyrsta lagi breytingu á lögum um tryggingagjald, sem varðar framlag til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða. Í fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030 og frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2026 var ekki gert ráð fyrir jöfnunarframlagi úr ríkissjóði vegna örorkubyrði til lífeyrissjóða. Í ljósi þess að endurskoðun á samspili greiðslna almannatrygginga og lífeyrissjóða til örorkulífeyrisþega er enn yfirstandandi er gerð tillaga um sambærilegt fyrirkomulag á jöfnun örorkubyrði á árinu 2026 og var á árinu 2025.

Í öðru lagi leggur meiri hlutinn til breytingar á lögum um skyldutryggingar lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða sem fela í sér tillögu um framlengingu á gildistíma ákvæðis til bráðabirgða XI sem varðar víxlverkun örorkulífeyrisgreiðslna almannatrygginga og lífeyrissjóða. Undanfarin ár hafa stjórnvöld unnið að heildarendurskoðun á örorkuhluta almannatryggingakerfisins og á vorþingi 2024 voru samþykktar breytingar á örorkuhlutanum sem leiddu til þess að nýtt greiðslukerfi almannatrygginga tók gildi 1. september 2025. Hin tímabundna stöðvun víxlverkunar, sem lögfest var með lögum nr. 106/2011, hefur verið framlengd árlega frá gildistöku þeirra, síðast með lögum um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2025, nr.?127/2024. Var stöðvun víxlverkunar framlengd til 31. ágúst 2025 eða þar til nýtt greiðslukerfi almannatrygginga tók gildi. Til að tryggja að markmiðið um bætt kjör örorkulífeyrisþega nái fram að ganga hefur verið unnið að framtíðarlausn á samspili greiðslna almannatrygginga vegna örorku annars vegar og greiðslna lífeyrissjóða vegna orkutaps hins vegar. Vonir standa til þess að henni geti lokið á næsta ári. Af þeim sökum þykir tilefni til að leggja til framlengingu á gildistíma ákvæðis til bráðabirgða XI í lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Tillögunni er þannig ætlað að koma tímabundið í veg fyrir að almennar hækkanir á greiðslum almannatrygginga til örorkulífeyrisþega leiði til lækkunar við útreikning lífeyrissjóða á lífeyri vegna orkutaps sjóðfélaga, örorkulífeyrisþegum til hagsbóta.

Meiri hlutinn taldi þær breytingar sem hér hefur verið lýst og unnar voru í samráði ráðuneytisins og hagaðila til bóta en hvetur ráðuneytið til þess að ljúka endurskoðun á samspili almannatrygginga og lífeyrissjóða vegna greiðslna örorkulífeyris hið fyrsta, enda hefur sú óvissa sem er um þessi mál varað lengi og tilefni til þess að greiða úr ærið.

Vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar í framhaldsnefndaráliti um framangreindar breytingar meiri hlutans.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem hér hefur verið gerð grein fyrir og koma annars vegar fram í nefndaráliti meiri hlutans og annars vegar framhaldsnefndaráliti meiri hlutans.

Undir álit meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þm. Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Aðalsteinn Leifsson, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir.

Undir framhaldsálit meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Pawel Bartoszek, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir.

Frú forseti. Ég vil fá að þakka nefndarmönnum, ráðuneytinu og ekki síst starfsmönnum nefndarinnar fyrir afskaplega gott samstarf. Vinna við frumvarpið gekk feykivel og var umræðan málefnaleg að öllu leyti. Nefndin náði ekki saman um allar breytingar sem hér hefur verið gerð grein fyrir og hér hafa auðvitað verið lögð fram álit frá minni hlutum, en ég vil samt segja að nefndin vann málið vel og þessi skoðanaskipti sem komu fram í nefndinni voru af hinu góða og urðu til þess að dýpka málið fyrir okkur nefndarmönnum enn frekar. Það var mikil samstaða um marga þætti málsins og má þar nefna sóknargjöldin, afnám tollfrelsis og lækkun á innviðagjöldum, þó að við höfum ekki náð saman um allar þær breytingar sem ég hef farið hér yfir. Það gerði vinnu nefndarinnar ívið viðameiri en lagt var af stað með í upphafi, þessar breytingar sem voru gerðar á vörugjöldunum. Ég vil fá að þakka nefndarmönnum fyrir þá góðu vinnu sem við lögðum í það, við gerðum auðvitað ekki ráð fyrir því í september þegar þetta mál var lagt fram. En mér finnst nefndin hafa unnið vel úr þessu. Við fengum fjölmargar umsagnir, þær sneru fyrst og fremst að innviðagjaldi sérstaklega og svo vörugjöldunum og þar fengum við fjölmargar umsagnir. Við brugðumst við þeim að mörgu leyti en þó ekki öllu og það er hlutverk okkar sem störfum í stjórnmálum, við þurfum að taka ýmsar ákvarðanir, sumar eru erfiðar og aðrar auðveldar. Að lokum vil ég bara fyrst og fremst þakka nefndarmönnum fyrir góða vinnu og mjög gagnlegt samstarf meðan á vinnslu þessa máls stóð.