breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni og formanni efnahags- og viðskiptanefndar fyrir ágætis- og fyrirtakserindi og góða samvinnu í nefndinni. Það er hins vegar ljóst að ein mínúta er langt því frá að vera nægilegur tími hér í andsvörum enda margt að ræða þannig að ég ætla að reyna að vera knappur hér. Mig langar fyrst að spyrja varðandi krónutöluhækkanirnar, sem eru 3,7%, hvort það hefði ekki verið skynsamlegra að mati formanns nefndarinnar að fara með þetta niður í 2,5% eins og verðbólgumarkmið Seðlabankans er?
Síðan langar mig að spyrja út í vörugjöldin. Nú er það orðið ljóst og það liggur fyrir að þessi krónutala, 7,5 milljarðar, muni ekki nást miðað við þær upplýsingar sem nefndin hefur, bæði frá bílasölum og bílaleigum. Af hverju var þessari tölu ekki breytt í meðförum nefndarinnar til þess að við værum í raun og veru að vinna með réttar tölur inni í fjárlagafrumvarpinu sjálfu?