almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta velferðarnefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um almannatryggingar. Lagt er til að þeir sem hafa fengið greiddan örorkulífeyri, hlutaörorkulífeyri eða ellilífeyri eða fengið sjúkra- og endurhæfingargreiðslur, sem og þeir einstaklingar sem fengu greiddan fullan endurhæfingarlífeyri samkvæmt lögum um félagslega aðstoð á árinu 2025 skuli fá eingreiðslu í desember að upphæð 73.390 kr. Eingreiðslunni er ætlað að ná til tekjulægstu greiðsluþeganna samkvæmt lögum um almannatryggingar og tekjulægstu endurhæfingarlífeyrisþeganna samkvæmt lögum um félagslega aðstoð.
Nefndin fjallaði um málið og fékk gesti á sinn fund. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis. Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti velferðarnefndar árétta sérstaklega að nefndin fjallaði um að frumvarpið taki eingöngu til þeirra sem hafa haft skráð lögheimili sitt hér á landi 1. nóvember 2025. Gerðar voru athugasemdir við þetta atriði í umsögn Landssamtaka Þroskahjálpar og ÖBÍ réttindasamtaka. Einnig fjallaði nefndin um umsögn ASÍ þar sem fram komu sjónarmið um að aðgerðin væri of almenn og samræmdist hún því ekki markmiði að lyfta greiðslum almannatrygginga til tekjulægri lífeyrisþega í ljósi þess til hve stórs hluta lífeyrisþega frumvarpið næði til.
Í þessu sambandi tekur meiri hlutinn undir sjónarmið sem fram komu í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytis þar sem vísað er til þess að greiðslan væri ætluð þeim tekjulægsta hópi lífeyrisþega sem búsettir eru hér á landi, enda hefði verðbólga verið hér há og þrálát og húsnæðiskostnaður hár. Því telur meiri hlutinn að ekki séu forsendur til að leggja til breytingar á frumvarpinu. Auk þess komu fram athugasemdir um að eingreiðslan taki ekki til einstaklinga sem fái greitt ráðstöfunarfé sem heimilt er að greiða þegar örorku- eða ellilífeyrisgreiðslur falla niður vegna dvalar á stofnunum hér á landi. Í umsögn ÖBÍ kom fram að engin málefnaleg rök hafi verið færð fyrir því að tryggja eingreiðsluna ekki tekjulægstu greiðsluþegunum úr hópi þeirra sem hafa lögheimili utan Íslands eða þeirra sem fá greitt ráðstöfunarfé vegna dvalar á stofnunum. Því samræmist það ekki markmiði frumvarpsins. Í þessu samhengi bendir meiri hlutinn á að fyrra frumvarp hafi ekki náð til þeirra sem fá greitt ráðstöfunarfé og því sé ekki um breytingu á milli ára að ræða.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti velferðarnefndar til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Undir álit meiri hluta velferðarnefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þm. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Grímur Grímsson, Kristján Þórður Snæbjarnarson og Sigurþóra Steinunn Bergþórsdóttir.