157. löggjafarþing — 47. fundur,  13. des. 2025.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

286. mál
[16:33]
Horfa

Frsm. velfn. (Jónína Björk Óskarsdóttir) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd velferðarnefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof og lögum um sorgarleyfi. Með frumvarpinu er lagt til að breytingar á fjárhæðum greiðslna til foreldra í fæðingarorlofi miðist ekki lengur við fæðingardag barns, töku barns í varanlegt fóstur eða frumættleiðingu heldur taki framvegis til allra þeirra foreldra sem rétt eiga til slíkra greiðslna eða ónýttan rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði. Þannig miðast hækkanir á fjárhæðum greiðslna framvegis ekki við þann dag sem barn er tekið í varanlegt fóstur, frumættleitt eða við fæðingardag barns, heldur taka þær til þeirra foreldra sem eiga rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði á hverjum tíma. Þá eru lagðar til breytingar á lögum um sorgarleyfi sem fela það í sér að fjárhæðir greiðslna samkvæmt þeim lögum eigi við um alla foreldra sem nýta rétt sinn samkvæmt lögunum, óháð því hvenær barnsmissir, andvanafæðing, fósturlát eða makamissir á sér stað.

Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis. Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill nefndin árétta sérstaklega: Frá setningu laga um fæðingar- og foreldraorlof hefur verið miðað við að fjárhæðir og hækkanir hámarksgreiðslna í fæðingar- og foreldraorlofi eigi við um foreldra barna sem fæðast, eru frumættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með tiltekinni dagsetningu. Þar sem hækkanir hámarksgreiðslu miðast við tiltekinn dag hafa komið upp tilvik þar sem foreldrar sem t.d. fæðist barn síðla árs fá lægri hámarksgreiðslur en foreldrar sem fæðist barn snemma árs árið eftir þar sem hækkun hámarksgreiðslna hefur verið miðuð við áramót.

Umsagnaraðilar við málið voru almennt jákvæðir gagnvart frumvarpinu og þeim breytingum sem þar eru lagðar til. Í umsögn BHM er þó m.a. lagt til að gengið verði lengra og hámarksgreiðslur hækkaðar frekar og að skýrar reglur verði settar um þróun fæðingarorlofsgreiðslna í hlutfalli við laun og horfið verði frá því að hækkanir á hámarksgreiðslum úr Fæðingarorlofssjóði séu óreglulegar.

Í umsögn BSRB er tekið í sama streng og í umsögn BHM um að hámarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði hækki enn frekar. Þá segir í umsögninni að félagið telji mikilvægt að frumvarp um að tekjulægri foreldrar haldi óskertum greiðslum í fæðingarorlofi komi fram sem fyrst og að tryggt verði að fæðingarorlofsgreiðslur verði aldrei lægri en lágmarkslaun.

Nefndin telur ástæðu til að undirstrika mikilvægi þess að tryggt verði að allir foreldrar sem eru í fæðingarorlofi hverju sinni eigi jafnan rétt og tekur nefndin undir þau markmið frumvarpsins. Frumvarpið er aðeins eitt skref í átt að réttlátara fæðingarorlofskerfi og eru breytingarnar til hagsbóta fyrir barnafjölskyldur. Hvetur nefndin ráðuneytið til þess að vinna áfram að nauðsynlegum breytingum á kerfinu til hagsbóta fyrir foreldra.

Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Grímur Grímsson, Ingibjörg Isaksen, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Kristján Þórður Snæbjarnarson, Rósa Guðbjartsdóttir, Sigríður Á. Andersen, Sigurður Örn Hilmarsson og Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir.

Þetta frumvarp tel ég að sé til mikilla hagsbóta og jafnræðis.