markaðir fyrir sýndareignir.
Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um markaði fyrir sýndareignir.
Með frumvarpinu er innleitt í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 frá 31. maí 2023 um markaði fyrir sýndareignir og um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1093/2010 og (ESB) nr. 1095/2010 og tilskipunum 2013/36/ESB og (ESB) 2019/1937. Notast hefur verið við skammstöfunina MiCa sem heiti á þessum gerðum. Samhliða gildistöku MiCa tók gildi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1113 frá 31. maí 2023 um upplýsingar sem skulu fylgja millifærslum fjármuna og tiltekinna sýndareigna og um breytingu á tilskipun (ESB) 2015/849, eða TFR. Sú tilskipun er innleidd í lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 140/2018.
Frumvarp þetta var lagt fram á 156. löggjafarþingi og afgreitt frá efnahags- og viðskiptanefnd með áliti meiri hluta nefndarinnar til 2. umræðu 6. júní sl. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að frumvarpið sé nú endurflutt að mestu óbreytt, að undanskildum þeim hluta frumvarpsins er varðar breytingu á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og snýr að innleiðingu TFR. Þær breytingar megi rekja til athugasemda Seðlabanka Íslands. Þá hafi verið tekið tillit til breytingartillagna sem meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar lagði til í fyrrgreindu áliti sínu.
Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar leggur til breytingar á frumvarpinu. Í umsögn Seðlabanka Íslands til nefndarinnar er vikið að 105. gr. reglugerðar (ESB) 2023/1114 um markaði fyrir sýndareignir. Seðlabankinn bendir á að það komi fram að eftirlitsstjórnvöld EES-ríkjanna geti bannað eða takmarkað tiltekna markaðssetningu, dreifingu eða sölu tiltekinna sýndareigna, sýndareigna með tiltekna tilgreinda eiginleika eða tiltekna starfsemi eða venju tengda sýndareignum. Í 3. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir að Seðlabankinn verði lögbært yfirvald hér á landi í skilningi laganna. Til að ákvæðið nái markmiði sínu og tryggi viðhlítandi grundvöll fyrir beitingu 105. gr. telur Seðlabankinn nauðsynlegt að bætt verði inn í frumvarpið sem 3. mgr. 15. gr. heimild fyrir bankann til setningar reglna til að setja slík bönn eða takmörk. Í minnisblaði sem nefndinni barst frá fjármála- og efnahagsráðuneyti kemur fram að tillaga Seðlabankans samræmist vel því sem lagt sé upp með greininni. Meiri hlutinn leggur því til breytingu til samræmis við umsögn Seðlabanka Íslands.
Þá leggur meiri hlutinn til tæknilegar breytingar sem ekki er ætlað að hafa áhrif á efni frumvarpsins.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.
Undir álit meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur hv. þingmenn Arna Lára Jónsdóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Pawel Bartoszek og Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir.