endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta atvinnuveganefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, nr. 43/1999, framlenging gildistíma o.fl.
Frumvarpið felur í sér framlengingu á gildistíma endurgreiðslu kerfis til kvikmyndagerðar á Íslandi til ársins 2028 og aukin áhersla á framleiðslu barna- og ungmennaefnis og eru lagðar til skýrari skilgreiningar á hugtökum.
Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Nefndin fjallaði um framleiðslu á barna- og ungmennaefni, í frumvarpinu er lagt til að stutt verði sérstaklega við barna- og ungmennaefni og í ákvæðinu skýrt nánar hvað teljist til slíks efnis. Við umfjöllun um málið komu fram sjónarmið um að fjármögnun á barna- og unglingaefni sé erfiðari en á öðru sjónvarpsefni og að skortur sé á innlendu efni. Meiri hlutinn fagnar þessari breytingu og telur að frumvarpið geti gagnast sem liður í því að efla íslenska tungu.
Þá fjallaði nefndin um endurgreiðslur umfram 300 millj. kr., en með frumvarpinu er lagt til að fari áætluð eða endanleg heildarendurgreiðsla yfir 300 millj. kr., verði endurgreiðsla ekki greidd út fyrr en í fyrsta lagi einu og hálfu ári eftir að umsókn er lögð fram. Með þessu fyrirkomulagi verði betur hægt að meta fjárþörf kerfisins hverju sinni.
Meiri hluti atvinnuveganefndar leggur til breytingar á frumvarpinu: Í fyrsta lagi eru lagðar til breytingar við 1. gr. Við umfjöllun um málið barst umsögn frá nefnd um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar. Þar kemur m.a. fram að inntak hugtaksins heildarframleiðslukostnaður sé skýrt samkvæmt gildandi lögum. Með heildarframleiðslukostnaði sé átt við allan kostnað kvikmyndar eða sjónvarpsþátta sem fallið hefur til innan EES, en til aðgreiningar er hugtakið framleiðslukostnaður notað yfir þann kostnað sem er endurgreiðsluhæfur, þ.e. kostnað sem uppfyllir skilyrði laganna sem og kostnað sem reynist endurgreiðsluhæfur á grundvelli 2. mgr. 2. gr. og að aðgreining þessara hugtaka sé nauðsynleg til að beita því ákvæði. Í umsögninni er tekið fram að sú skýring á ákvæði 2. gr. sem þar er lögð til grundvallar hafi verið hluti af framkvæmd nefndarinnar frá upphafi, en borið hafi á því að fámennur hópur umsækjenda hafi túlkað ákvæðið með þeim hætti að með heildarframleiðslukostnaði sé átt við þann kostnað sem sótt er um endurgreiðslu fyrir. Ef sá skilningur yrði lagður til grundvallar yrði um samruna á hugtökunum heildarframleiðslukostnaði og framleiðslukostnaði að ræða og beiting 2. mgr. 2. gr. laganna í raun marklaus.
Meiri hlutinn áréttar, líkt og kemur fram í umsögninni, að þeirri breytingu sem lögð er til með frumvarpinu er ætlað að skýra ákvæði 2. gr. frekar, en ekki breyta framkvæmd endurgreiðslna hvað þetta varðar. Í greinargerð með frumvarpinu er það tekið sérstaklega fram að mikilvægt sé að taka af tvímæli um skilgreiningu orðsins heildarframleiðslukostnaður eins og það kemur fram í lögunum, þ.e. hvort með því sé átt við heildarframleiðslukostnað umsækjanda vegna þess verkefnis sem viðkomandi tekur að sér, mögulega sem hluta af kvikmynd eða sjónvarpsefni, eða heildarframleiðslukostnað kvikmyndar eða sjónvarpsefnis óháð hlutdeild umsækjanda um endurgreiðslu hér á landi í þeim heildarkostnaði. Í ljósi þessa tekur meiri hlutinn undir þau sjónarmið sem koma fram í umsögn nefndar um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar og leggur til breytingar á 2. málslið 1. mgr. 2. gr. laganna.
Í öðru lagi er lögð til breyting á ákvæði til bráðabirgða I. Lagt er til að ákvæðið, sem fjallar um heimild þeirra sem synjað hefur verið um endurgreiðslu að óska eftir endurupptöku á máli sínu, nái einnig til ársins 2024. Þá leggur meiri hlutinn einnig til að í stað 60 daga frests til þess að óska eftir endurupptöku verði hann 90 dagar.
Þá fjallaði nefndin um nauðsyn þess að fram fari heildarendurskoðun á kerfinu eins og það er byggt upp í dag og hvetur ráðuneytið til að hefja vinnu við endurskoðunina við fyrsta tækifæri. Leggur meiri hlutinn til að við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, þar sem fram kemur að ráðherra skuli setja á laggirnar starfshóp sem skal endurskoða ákvæði laga um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi og að lokinni þeirri endurskoðun skila tillögum til breytinga til ráðherra fyrir 1. mars 2026.
Þá eru lagðar til minni háttar eða lagatæknilegar breytingar sem þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar. Vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar um breytingartillögur í áliti meiri hluta atvinnuveganefndar.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti atvinnuveganefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.
Undir álit meiri hluta atvinnuveganefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Sigurjón Þórðarson, Eiríkur Björn Björgvinsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Ingvar Þóroddsson og Lilja Rafney Magnúsdóttir. Þórarinn Ingi Pétursson, áheyrnarfulltrúi, er samþykkur álitinu.
Herra forseti. Þetta er mikilvægt mál og atvinnugreinin er mikilvæg sem málið tengist og getur haft margþætt áhrif á stöðu framleiðslu kvikmynda hér á landi og er það auðvitað yfirleitt mjög góð landkynning fyrir þjóðina þegar efni er framleitt hér. Það er sérstaklega mikilvægt, eins og kom fram í nefndaráliti meiri hlutans, að ýta undir og bæta framleiðslu á barna- og unglingaefni og eins og kom fram hefur það auðvitað áhrif á okkar íslenska tungumál og auðveldar að læra það.
Ég vil að lokum þakka nefndarfólki öllu í hv. atvinnuveganefnd fyrir mjög gott samstarf við vinnslu þessa máls og það hefur verið góð vinna sem hefur verið lögð í þetta af öllum nefndarmönnum atvinnuveganefndar og þakka ég að sjálfsögðu fyrir það.