endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
Herra forseti. Ég hef nú kannski ekki kynnt mér þetta í þaula en það er margt athyglisvert sem þarna kemur fram, það sem ég hef séð. Ég er bara að velta fyrir mér nokkrum spurningum til hv. þingmanns og þakka honum fyrir framsöguna sem var prýðileg. Ég er að spá í þessum heildarframleiðslukostnaði og sjónarmiðunum bara almennt og í stóra samhenginu. Hver eru sjónarmiðin hvað varðar endurgreiðslur? Um hvað var rætt á nefndarfundunum, þ.e. hver eru sjónarmiðin um hvort ætti að endurgreiða í öllum tilvikum, hvað ætti að endurgreiða, hvort það væri sérstaklega horft til íslensks efnis, hvort það verði sérstaklega horft til efnis sem höfði til Íslendinga og hvort þetta væri kvikmyndaefni sem væri sýnt á Íslandi eða líklega ekki sýnt hér. Hver væru helstu sjónarmiðin hvað varðar skilyrði til að fá endurgreiðslu? Auðvitað er æskilegt, eigum við ekki að segja það, að hingað komi framleiðendur til Íslands og taki hér upp kvikmyndir. Það veitir fjármagn inn í atvinnulífið að sjálfsögðu, það er augljóst, en ekki síður myndi ég segja að þetta auglýsi Ísland og á jákvæðan hátt yfirleitt; sýni hér landslag, mannlíf og menningu þannig að þetta er fyrst og fremst auglýsing og innspýting í atvinnulífið. En það eru líka önnur sjónarmið. Við getum kannski ekki verið hér sem alhliða kvikmyndaver. Ég vil fá svona skoðanir (Forseti hringir.) hv. þingmanns um það: Hvað finnst hv. þingmanni að ættu að vera almennu sjónarmiðin?