viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur fyrir framsögu á þessu nefndaráliti. Ég er ekki í umhverfis- og samgöngunefnd og það má vera að ég hafi ekki fulla yfirsýn yfir hvað hér er að gerast og ég skammast mín ekkert fyrir það. Þessi úthlutun á endurgjaldslausum losunarheimildum í flugi og í skipaflutningum — getur hv. þingmaður upplýst mig um það? Heyrðist mér rétt hjá hv. þingmanni þegar hún sagði að þetta væri endurgjaldslaust út árið 2026 en eftir það líklega ekki? Var það fólgið í þessum innleiðingum hér eða er það eitthvað sem er búið að gerast áður? Þurfa íslensk flugfélög og íslensk skipafélög að greiða fyrir þessar heimildir eftir að þessum tíma lýkur? Á þetta sama við um skipafélög og flugfélög eða er einhver munur þar á? Ég átta mig ekki á því svona í fljótu bragði.
Frú forseti. Ef svarið er jákvætt þá er það auðvitað í hæsta máta einkennilegt ef Ísland, sem er eyja langt norður í hafi, þarf að fara að greiða sérstaklega einhverjar sektir eða kaupa einhverjar heimildir, sem er auðvitað bara það sama, til að komast til og frá landinu. Mig langar fyrst til að fá svar við þessu frá hv. þingmanni: Hvað felur þetta nákvæmlega í sér?