skattahækkanir ríkisstjórnarinnar.
Frú forseti. Nú styttist í að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur fagni eins árs afmæli sínu. Í kosningabaráttunni var meginstefið hjá Samfylkingunni að flokkurinn væri með plan. Kjósendum var sagt að þetta plan væri heildaráætlun, þaulhugsuð og tilbúin til framkvæmdar. En kjósendur meta líka heiðarleika. Þeir gera þá sjálfsögðu kröfu til stjórnmálamanna að þeir segi satt. Nú lít ég á svokallaðan árangur þessarar ríkisstjórnar á fyrsta afmæli sínu og ég kemst ekki hjá því að hugsa: Af hverju í ósköpunum voruð þið að segja þetta? Hvað fékk hæstv. formenn ríkisstjórnarflokkanna til að heita því að þær myndu ekki hækka skatta á venjulegt fólk í landinu þegar það sem helst stendur upp úr á eins árs afmælinu er nákvæmlega það? Hvað er það annað en óheiðarlegt? Ef plan Samfylkingarinnar var svona úthugsað, hvers vegna er þá gripið til þessa? Og nei, ríkisstjórnin tók ekki við slæmu búi. Hún fékk 80 milljarða tekjur umfram áætlanir en boðar samt útgjaldaaukningu upp á 143 milljarða og skattahækkanir upp á 30 milljarða.
Virðulegi forseti. Ég spyr því hæstv. forsætisráðherra: Gerði plan Samfylkingarinnar ráð fyrir þessum gríðarlegu skattahækkunum á almenning eins og raun ber vitni og ef svo er, hvers vegna var þá fullyrt að skattar yrðu ekki hækkaðir á venjulegt fólk? Það þarf ekki að ganga um landið, sveitarfélag úr sveitarfélagi og berja á dyr hjá fólki til að spyrja hvernig venjulegt fólk hafi það og hvernig venjulegt fólk dregur fram lífið á venjulegum degi. Hættið þið bara að hækka skatta á almenning í landinu.