skattahækkanir ríkisstjórnarinnar.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið. Fólk mun finna fyrir því, fólk mun finna fyrir því í buddunni, segir hæstv. forsætisráðherra. Það vitum við nefnilega, það vitum við Sjálfstæðismenn, að þær skattahækkanir sem munu dynja núna á íslensku þjóðinni á nýju ári, að hver einasti íbúi, hver einasta fjölskylda, hvert einasta heimili mun finna áþreifanlega fyrir því. Það verður nefnilega minna í buddunni, minna til skiptanna. Þetta er bara orðskrúð sem hæstv. forsætisráðherra er að fara með hér enn eina ferðina, talar hér um að það sé búið að snarfjölga hjúkrunarrýmum. Þetta er bara tal. Hvar eru þessi hjúkrunarrými? Var ekki Landspítalinn að segja síðast í gær í fréttatíma RÚV að það væri ekkert að gerast í málum hvað varðar hjúkrunarheimili? Hæstv. forsætisráðherra nefnir útlendingamál. Hvað er búið að gera annað en að tala og tala og svo hækka skatta og hækka skatta? Það er það eina sem hefur komið frá þessari ríkisstjórn. (Forseti hringir.) Ég spyr því enn hæstv. forsætisráðherra: Hvenær fá heimilin raunverulega skattalækkun í stað þyngri byrða og getur forsætisráðherra nefnt eina aðgerð (Forseti hringir.) á næsta ári sem mun létta byrðarnar á heimilunum í landinu?
(Forseti (EÁs): Forseti minnir hv. þingmenn á að ræðutími er ein mínúta í síðari fyrirspurn.)