skattahækkanir ríkisstjórnarinnar.
Frú forseti. 1,75% vaxtalækkun, það eru 60.000 kr. á mánuði fyrir meðalheimili sem er með 40 millj. kr. lán. Það munar einfaldlega um það. Það skiptir öllu máli núna að við höfum afkomuna réttu megin og þess vegna erum við að stefna að því að vera með 0,5% halla á fjárlögum og 0% árið 2027. Það skapar forsendur fyrir vaxtalækkun sem allir hér inni vita — sama hvað menn tala um skattalækkanir sem oft og tíðum eru óábyrgar vegna þess að á sama tíma er fólk að tala um þjónustuaukningu, aukningu í viðhald vega. Þetta er ástæðan fyrir því að síðasta ríkisstjórn kom sér aldrei saman um hallalaus fjárlög, annars vegar snerist þetta um að lækka skatta og hins vegar um að gefa ætti í alls staðar. En gott og vel, stærsta forsendan fyrir betra svigrúmi hjá heimilunum eru vaxtalækkanir. Það er enginn að gera lítið úr stöðunni á bráðamóttökunni. En af hverju er staðan þannig? Af hverju er staðan þannig eftir tíu ár með Sjálfstæðisflokkinn við völd? Það er vegna þess að hér voru ekki byggð hjúkrunarheimili. (Forseti hringir.) Nú eru hundruð hjúkrunarheimila á planinu hjá þessari ríkisstjórn. Nú förum við í að klára málin saman. Og ég ætla að vekja athygli á einni skattalækkun (Forseti hringir.) ef skattalækkun skyldi kalla: Innviðagjaldið, ég veit ekki betur en að innviðagjaldið hafi verið innleitt af ríkisstjórn sem hv. þingmaður sat (Forseti hringir.) sjálf í síðast og er vonandi verið að lækka hér af hálfu þessa þings; minni hlutinn tekur undir það.
(Forseti (EÁs): Forseti ítrekar að ræðutími er ein mínúta í síðari fyrirspurn.)