forgangsröðun ríkisstjórnarinnar.
Frú forseti. Ég skil vel að það eru tilfinningar sem fylgja þessu máli. Þetta hreyfir við okkur öllum. En það er betra að ræða um þessi mál, ekki í efsta stigi heldur af yfirvegun. Það er betra að reyna að ná saman um úrræði en að fara í upptalningu á persónum eða leikendum. Ég hef áður nefnt að í þessum viðkvæma málaflokki, sem við höfum sem samfélag sannarlega heilt yfir brugðist illa við í áraraðir, þurfi að ráðast í aðgerðir. Við erum með ráðherranefnd um málefni barna þar sem verið er að fara sérstaklega yfir meðferðarúrræðin, verkaskiptingu, hvort það eigi til að mynda að fara í tilflutning á ákveðnu úrræði varðandi fíknisjúkdóma barna yfir á aðra vettvanga. Það er verið að skoða þetta í grunninn og í kjölinn. En við tökum þessa brýningu til okkar, hv. þingmaður. Við tökum þessu öllu alvarlega.