tekjuforsendur fjárlaga.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir alveg ljómandi góða spurningu. Ég var á málþingi hjá Samtökum aðila í ferðaþjónustu í síðustu viku, þar heyrði ég gamansögu og ég get farið með hana hér. Hvernig vitið þið að hagfræðingur hefur skopskyn? Hann setur aukastafi í áætlanirnar sínar. Ég held að við getum deilt því saman, við hv. þingmaður, að það er alltaf ástæða til að hafa áhyggjur af tekjuáætlunum ríkissjóðs. Það er rétt sem hv. þingmaður segir að við förum eins nærri stöðugleikareglunni og mögulegt er. Það er auðvitað alltaf áhyggjuefni og ég hefði gjarnan viljað að það væri ekki þannig.
Ég vil leiðrétta einn misskilning, þ.e. að tekjuskattur lögaðila lækkar um áramót úr 21% í 20%. Gert hefur verið ráð fyrir því í tekjuáætluninni þannig að ég vil bæta við það sem hæstv. forsætisráðherra kom fram með áðan að það eru svo sem fleiri skattalækkanir í boði. Varðandi bílasöluna er gert ráð fyrir að hún sé minni á árinu 2026 en á árinu 2025 þannig að það er gert ráð fyrir ákveðnum samdrætti þar. Varðandi veiðigjöldin hefur þegar komið fram í máli hæstv. forsætisráðherra að gerðar voru breytingar í meðförum þingsins sem gera það að verkum að þarna verður fyrirsjáanleg lækkun sem ég held að sýni nú glögglega að ríkisstjórnin hefur verið opin fyrir því að hlusta á mótbárur stjórnarandstöðunnar í því máli sem mörgum öðrum.