157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

tekjuforsendur fjárlaga.

[11:07]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra kærlega fyrir svarið. Það er ánægjulegt að heyra, þótt tilefnið sé ekki ánægjulegt, að við deilum áhyggjum af stöðunni. Ég man eftir umræðunni, virðulegur forseti, þegar við vorum að ræða stöðugleikaregluna. Hæstv. ráðherra sagði í ræðu í þessum stól að við þyrftum ekki að hafa áhyggjur af því að stöðugleikareglan yrði að fullu nýtt. Það væri ekki ætlunin, enda vantar 15 milljónir upp á. Það sem ég hef hins vegar áhyggjur af, og hefur ekki komið fram í umræðunni svo að ég muni, er að þrátt fyrir alla þessa veikleika tekjulega eru tvær aðrar einingar, annars vegar Landsnet og hins vegar Landsvirkjun, varðandi arðgreiðslur nú þegar að verða fyrir tjóni vegna Norðuráls. (Forseti hringir.) Hefur hæstv. ráðherra skoðað það og hvað það mun þýða fyrir ríkissjóð?