tekjuforsendur fjárlaga.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir aðra alveg ljómandi góða spurningu. Nú er það þannig, og þetta veit auðvitað hv. þingmaður, að arðgreiðslur ríkisfyrirtækjanna eru ekki hluti af þessum tekjum sem miðað er við. Eftir því sem ég best veit þá eru áhrif rekstrarstöðvunar Norðuráls á rekstur Landsvirkjunar umfangslitlar í ljósi þess að, með leyfi forseta, það eru notaðir svokallaðir „take or pay“-samningar sem hefur ekki verið nein vísbending um að muni ekki halda. Nú er það líka þannig að þetta óskabarn þjóðarinnar, sem Landsvirkjun á vissan hátt er, er komið á þann stað í sinni rekstrarsögu að eignir eru efnahagslega fullafskrifaðar en enn þá að skapa tekjur. Þetta er sérstaklega gleðilegt og mælir fagurlega um forsjá þeirra sem hófu þá vegferð að virkja orkuauðlindir Íslands í stærra umfangi á sjöunda áratug síðustu aldar.(Forseti hringir.) Þannig að nei, ég hef ekki áhyggjur af því og það tengist þessu ekki beint.