úrræði fyrir börn með fíknivanda.
Frú forseti. Fundarstjórn forseta hefur verið ágæt. Það sem mig langar að ræða er það að hér hefur orðið breyting á. Við erum að tala um faraldur sem ekki er horfst í augu við. Þegar ég nefni tölu og bið um tölu er það vegna þess að aukningin í þessum hörmulegu málum hefur orðið töluverð. En því miður virðist ríkisstjórnin ekki geta horfst í augu við vandann. Ég held að við séum öll sammála um það að þetta er grafalvarlegt. En hvernig væri þá að koma hér, frú forseti, í pontu og viðurkenna að það hafi orðið aukning? Hér er faraldur í gangi. Það var annar faraldur fyrir skömmu síðan. Milljarðar fóru í hann. Það var hægt á tíu dögum að byggja upp úrræði, á tíu dögum, frú forseti. En núna er liðið u.þ.b. ár og enn verið að bíða eftir úrræðum. Eru þetta skilaboðin til þeirra foreldra sem eru á milli vonar og ótta með börnin sín hingað og þangað? (Forseti hringir.) Eru þetta skilaboðin? Er þetta lágpunkturinn á þinginu, eins og hv. þingmaður nefndi hér áðan?