úrræði fyrir börn með fíknivanda.
Virðulegi forseti. Ég get tekið undir það að umræðan má ekki vera í átt að sakbendingu, kannski í þá veru sem hún var. Ég vil undirstrika að vandamálið er gríðarlega alvarlegt. Það eru margar fjölskyldur sem kvíða jólunum. Ég get sannarlega tekið undir það að við getum gert miklu betur þegar kemur að aðferðafræðinni. Það er alveg rétt að ef við horfum til samanburðar við Covid, ef við horfum á aðgerðir á Reykjanesinu, þá erum við snögg að setja upp plan og hrinda því í framkvæmd. Þó svo að við séum, sem er jákvætt hjá ríkisstjórninni, að sjá aukna fjármuni fara í málaflokkinn er aðferðafræðin, hvernig við hlaupum af stað, hvernig við náum markmiðum, hver eru mælanlegu markmiðin með auknu fjármagni — það er þarna sem við getum gert betur og við verðum að gera betur. Ég hvet okkur öll til að sameinast um það.