eftirlitshlutverk Alþingis gagnvart framkvæmdarvaldinu.
Virðulegur forseti. Á sínum tíma var skipaður starfshópur til að gera skýrslu um eftirlitshlutverk Alþingis sem forsætisnefnd fól að fara yfir lagareglur um eftirlit þingsins. Hópinn skipuðu Bryndís Hlöðversdóttir, Andri Árnason og Ragnhildur Helgadóttir prófessor. Þar kemur m.a. fram að þegar litið er til þess hvernig samskiptum og samstarfi Alþingis og framkvæmdarvaldshafa er háttað er almennt talið í íslenskum stjórnskipunarrétti að löggjafinn þurfi ekki að sæta neinum takmörkunum af framkvæmdarvaldsins hálfu. Þvert á móti er Alþingi talin vera æðsta stofnun samfélagsins. Þetta er einnig varið í stjórnarskrá.
Í 15. gr. þingskapalaga stendur að skylt sé að boða til fundar ef ósk berst um það frá a.m.k. fjórðungi nefndarmanna og taka á dagskrá þau mál sem tilgreind eru. Við getum einnig kallað til ráðherra fyrir nefndina. Fundi skal halda svo fljótt sem við verður komið. Formaður skal gefa viðhlítandi skýringar ef dregst umfram þrjá virka daga að halda fund í nefndinni. Innviðaráðherra hefur hunsað þá beiðni nefndarmanna núna í sennilega sex, sjö vikur að koma á fund nefndarinnar til að ræða þar ákveðið málefni. Þetta er auðvitað mjög alvarlegt. Atvinnuvegaráðherra, sem við óskuðum eftir að kæmi fyrir nefndina um miðjan júlí, kom um miðjan nóvember.
Virðulegur forseti. Ég leita liðsinnis forseta til að kippa þessum hlutum í lag vegna þess að þingið getur ekki sinnt eftirlitsskyldum sínum, því mikilvæga hlutverki, ef svona framkoma er af hálfu ráðherra.