eftirlitshlutverk Alþingis gagnvart framkvæmdarvaldinu.
Virðulegi forseti. Ég tek undir það sem hv. þm. Jón Gunnarsson nefnir hér og vil líka nefna það að í hv. fjárlaganefnd — það er ekki við forystu þeirrar nefndar að sakast — erum við búin að bíða eftir upplýsingum, sem eru nauðsynlegar fyrir okkur til að sinna okkar hlutverki, núna í nokkrar vikur. Það var síðast umræða í morgun. Þetta eru upplýsingar frá tveimur ráðuneytum og það er með ólíkindum að þau ráðuneyti hafi ekki brugðist við ítrekuðum óskum okkar um upplýsingar sem við þurfum að fá til að geta tekið afstöðu til mála og geta sinnt hlutverki okkar sem hv. alþingismenn. Ég veit ekki hvað skal segja um málið annað en það að ég hvet virðulegan forseta til að beita sér í þessu því það segir sig sjálft að ef við fáum ekki þær upplýsingar sem okkur ber lögum samkvæmt og er heimilt að fá, og það ætti að vera mjög einfalt (Forseti hringir.) að veita þær, þá getum við ekki sinnt okkar hlutverki.