eftirlitshlutverk Alþingis gagnvart framkvæmdarvaldinu.
Frú forseti. Vegna athugasemda sem komu hér fram varðandi komu hæstv. innviðaráðherra á fund atvinnuveganefndar þá er rétt að geta þess að hann hefur staðfest komu sína á morgun í fyrramálið, kl. 8:10. Það er líka rétt að taka það fram að hann var reiðubúinn til að koma í síðustu viku en það kom fram ósk á fundi þingflokksformanna að fallið yrði frá þeim fundi vegna skemmtana þingmanna kvöldið áður. Hæstv. innviðaráðherra er allur af vilja gerður til að koma á fund nefndarinnar og það er rétt að staðfesta það í kjölfar þeirrar umræðu sem varð hér um fundarstjórn forseta.