hafnalög.
Virðulegi forseti. Þetta frumvarp, sem lagt var fram af hálfu allrar umhverfis- og samgöngunefndar, snýr fyrst og fremst að því að nýta megi það fjármagn úr Hafnabótasjóði sem Alþingi ráðstafar til hans þrátt fyrir að þær framkvæmdir séu ekki tilgreindar í samgönguáætlun. Það liggur fyrir að fjárheimild Hafnabótasjóðs, samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2026, er 1.592 millj. kr. og nauðsynlegt að framkvæmdir við hafnarbætur stöðvist ekki. Helstu endurbótaverkefni sem stefnt er að eru í Bolungarvík, á Húsavík, Sauðárkróki og Seyðisfirði. Hér er um að ræða bráðabirgðaákvæði sem gildir þar til ný samgönguáætlun hefur verið samþykkt og ekki lengur en til 1. janúar 2027. Ég vil, virðulegur forseti, þakka hv. umhverfis- og samgöngunefnd fyrir að hafa sameinast um að flytja þetta góða mál.