skattar, tollar og gjöld.
Virðulegur forseti. Þetta mál, og einnig það mál sem við vorum að greiða atkvæði um hér áðan, er gott dæmi um að það skiptir máli að hafa góða stjórnarandstöðu í landinu. Sem betur fer er það svo. Hv. stjórnarandstaða vakti t.d. athygli á því í máli sem við greiddum atkvæði um þar á undan, varðandi erfðafjárskattinn — þá var hæstv. ríkisstjórn, og ég vil vekja athygli á þessu, að lauma í gegn miklum skattahækkunum án þess að segja frá því. Ég vek athygli á því sérstaklega í því máli hvernig spunameistarar ríkisstjórnarinnar og stjórnarliðar úthúðuðu þeim hv. þingmönnum sem bentu á hið augljósa, alveg eins og í þessu máli hér. Þrátt fyrir að hv. þm. Pawel Bartoszek sé einhvern veginn að afsaka það að Viðreisn sé að gera rétt þá vil ég bara þakka hv. þingmönnum Viðreisnar fyrir að gera rétt. Það er góð regla og þeir ættu að gera meira af því. En í þessu tilfelli er það þannig að við vorum í þeirri stöðu að hæstv. ríkisstjórn ætti (Forseti hringir.) — það er eitthvað að þessari klukku, hún fer hérna út og suður.
(Forseti (ÞSv): Já, það er eitthvað að klukkunni en þingmaðurinn hefur fengið tímann sinn.)
Þetta er ekki sanngjarnt, virðulegi forseti, þegar maður er hér í miðri ræðu og nógur tími eftir og svo fara menn bara að leika sér í klukkunni á forsetaborðinu.
(Forseti (ÞSv): Það er enginn að leika sér.)
Og allt í einu er tíminn bara búinn. En aðalatriðið er þetta: Hlustið þið bara meira á stjórnarandstöðuna, þá verður þetta miklu betra.