157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[13:48]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Nú hefjum við langa og flókna atkvæðagreiðslu um langt og flókið mál sem mun valda miklu flækjustigi og miklum kostnaði fyrir borgara þessa lands sem og fyrirtækin. Það er meiri kostnaður við að innheimta kerfið heldur en nemur auknum tekjum í ríkissjóð. Við sáum síðast í gær koma inn umsögn frá Félagi eldri borgara í Reykjavík þar sem menn lýsa yfir miklum áhyggjum af því flækjustigi og áhyggjum sem er verið að velta yfir á eldri borgara og aðra hópa í þessu landi. Þetta er algerlega tilgangslaust. Það hefur ekki komið fram hér í umræðunum í þinginu hver hin raunverulega þörf fyrir málið er. Það sem gerir þetta mál enn verra núna en þegar það kom fram í vor er að núna er verið að setja 7,5 milljarða í álögur í gegnum vörugjöld á bifreiðar á sama tíma, sem magnar upp hversu vont þetta mál er. Ég legg til að því verði hafnað.