157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[13:54]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ef við ætlum að einfalda það hvað þetta mál gengur út á þá er þetta flóknara regluverk, hækkun skatta og minni samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu. Það á að flækja regluverk, hækka skatta og draga úr samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu. Bara til að setja þetta í eitthvert samhengi þá mun þetta flókna regluverk kosta um 1,6 milljarða fyrir þá sem standa í atvinnurekstri. Það er komin reynsla á slæman undirbúning hæstv. ríkisstjórnar þegar farið er í kerfisbreytingar. Það var kynnt fyrir okkur í fjárlaganefnd, þið munið kannski eftir því að það var farið svolítið í skattahækkunarmál í sumar. Það átti að skila 7,6 milljörðum. (Forseti hringir.) Niðurstaðan er að það skilar 900 milljónum.