kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Framsóknarflokkurinn er róttækur umbótaflokkur. Við höfum unnið að þessari breytingu um þó nokkurt skeið. Því miður er það svo að útfærsla núverandi ríkisstjórnar á þessu máli er ekki nægilega góð. Það er ekki tekið tillit til fjölmargra þátta sem við hefðum kosið að væru lykilatriði. Sumir þeirra kosta alveg ótrúlega lítið, eins og t.d. að tryggja jafnan flutningskostnað, að frumvarpið hafi ekki áhrif á flutningskostnað út á land. Því ætlar meiri hlutinn að hafna. Við höfum sannarlega áhyggjur af því að á sama tíma og þessi mikla kerfisbreyting er gerð, sem hefur sannarlega áhrif á bílaleigurnar í landinu og ferðaþjónustuna, þá velji meiri hlutinn að fara með tvær aðrar breytingar og leggja þær á bílaleigurnar sem gerir það að verkum að næsta ár verður mjög erfitt. Af þeim sökum getum við ekki stutt þetta mál en ég vil benda á að við erum búin að keyra svona kerfi á rafmagnsbílum nú í tvö ár og það hefur gengið ágætlega hjá fólki, venjulegu fólki, að skila þeim upplýsingum. Þó að þetta sé auðvitað umfangsmeira vegna þess að það eru miklu fleiri bílar undir þá erum við þó búin að undirbúa það. (Forseti hringir.) Ég held að kerfið sem slíkt sé tilbúið til að takast á við þetta. Útfærslan er hins vegar ekki nógu góð hjá núverandi meiri hluta, horfir til að mynda ekki til landsbyggðarinnar, og við munum ekki geta stutt málið.