kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Við erum nú þegar að rukka þá sem nota vegina í gegnum olíugjaldið. Og hvað erum við að fara að gera núna? Við erum að hætta að rukka olíugjald. Við erum með vinstri stjórn sem vill hækka skatta. Hækkið þið þá bara olíugjaldið. Við munum berjast á móti því en hækkið þið þá bara olíugjaldið. Nei, í staðinn ætlið þið að fara að búa til kerfi sem leggur milljarðakostnað á skattgreiðendur, á fyrirtækin í landinu sem eru að nýta þetta, og fara að senda út reikninga á 300.000 ökutæki. Það er kerfið sem verið er að búa til. Allt tal um að það þurfi að rukka meiri skatta af ökutækjum til að borga fyrir samgöngumannvirki er náttúrlega ekki rétt. Við erum ekki að nota og fullnýta þá skatta sem við höfum í dag af ökutækjum og samgöngum í innviðauppbyggingu í samgöngumálum. Það er nóg til í þeim sköttum til þess að fara í innviðauppbyggingu og það þarf ekki að bæta við sköttum og búa til kerfi sem leggur kostnað upp á hundruð milljóna eða jafnvel milljarða á skattgreiðendur og fyrirtækin í landinu og flækir þetta von úr viti.