157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[13:59]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Það hefur lengi verið kallað eftir fyrirsjáanleika af almenningi í landinu gagnvart þinginu. Hér er enn eitt málið sem ekki er fyrirsjáanleiki í. Þetta á að taka gildi núna eftir rétt rúmar tvær vikur. Helstu gallar við málið, svona gagnvart atvinnurekstri í landinu, eru áhrif á ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Árstíðasveiflan vex við það sem þetta frumvarp snýst um. Þetta hefur gríðarleg áhrif á bílaleigurnar í landinu. Íslensk ferðaþjónusta og samkeppnishæfni hennar snýst um hvað flugið kostar til landsins, hvað gistingin kostar og hvað bílaleigubíllinn kostar. 64% allra erlendra ferðamanna sem koma til Íslands leigja sér bíla. Það er dreifileiðin. Þetta frumvarp vinnur gegn því og styttir ferðalögin hjá erlendum ferðamönnum. Þeir sækja skemur út á land og þetta mun hafa gríðarleg áhrif á atvinnulífið, ferðaþjónustuna og landsbyggðirnar allar.