kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Ég hef þegar lýst afstöðu minni til þessa máls hér í ræðu en ég get ekki orða bundist þegar talað er um að þessi ríkisstjórn hafi kjark til að breyta. Þessu er bara kastað út á almenning og atvinnulífið í landinu með engum fyrirvara. Við vorum boðuð á fund hjá Samtökum aðila í ferðaþjónustu í síðustu viku þar sem einhver fulltrúi orðaði með þeim hætti að það væri kannski almenn kurteisi að það væri einhver fyrirsjáanleiki. Hver er fyrirsjáanleikinn núna fyrir bílaleigurnar sem þurfa að aðlagast þessu kerfi? 14 dagar og það yfir hátíðarnar. Er þetta fyrirsjáanleikinn sem þessi ríkisstjórn býður atvinnulífi Íslands upp á? Munið þið eftir umræðunni um innviðagjald? Hvaða mistök voru gerð þar? Þá var reyndar enginn úr þáverandi stjórnarandstöðu sem stóð upp í þeirri atkvæðagreiðslu og vakti athygli á því hvað væri verið að gera en eftir það hefur þessi ríkisstjórn talað um mistök fyrri ríkisstjórnar. Ég er sammála, það voru mistök, (Forseti hringir.) en það er nákvæmlega það sama og þessi ríkisstjórn er að gera núna, mistök, boltanum er kastað yfir á atvinnulífið, atvinnugrein sem er þegar í kröggum. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)