kílómetragjald á ökutæki.
Frú forseti. Eitt aðalstefnumál þessarar ríkisstjórnar sjáum við í fjárlögum og frumvörpum þeim tengdum, eins og þetta kílómetraskattsfrumvarp sem við erum að greiða atkvæði um hérna núna, þ.e. að leggja sífellt meiri álögur á fólk og fyrirtæki, skattahækkanir á venjulegt fólk og fyrirtæki hér í þessu landi. Þetta kýs ríkisstjórnin að kalla einhverjum öðrum nöfnum en skattahækkanir. Það er einn þingmaður sem er hérna í salnum sem ég kannast við að kalli þetta réttu nafni. Þessar álögur eða skattahækkanir bitna ekki síst hart á landsbyggðinni. Þetta er umfangsmikil kerfisbreyting, hátt flækjustig, illa undirbúið og gildistaka eftir tvær vikur. Þetta er bara galið. Ég myndi vilja að þessu máli yrði vísað frá. Ef því verður ekki vísað frá þá mun ég greiða atkvæði gegn því.