157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

kílómetragjald á ökutæki.

144. mál
[14:04]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Kílómetragjöld sem ríkisstjórnin leggur hér til eru ekki bara einhver einföld kerfisbreyting, langt frá því. Við höfum heyrt og rætt hér í þingsal á síðustu dögum áhrifin og umsagnir sem hingað hafa borist, sem eru nánast allar neikvæðar, sérstaklega af hendi ferðaþjónustunnar og bílaleiganna. Bílaleigurnar munu fá á sig högg, það mun koma högg á ferðaþjónustuna og nú þegar hafa margar bílaleigur lokað útibúum sínum úti á landi. Þetta mun fara út í matvælaverð. Þetta mun fara út í vísitöluna. Þetta mál er ekki arfleifð fyrri ríkisstjórnar, svo að því sé nú haldið til haga. Við teljum að þetta sé röng leið fyrir Ísland og við í Sjálfstæðisflokknum munum hafna þessu máli í heild og hefðum auðvitað helst viljað sjá frávísun. Hér er um enn eina skattahækkunina að ræða á heimilin í landinu. Þetta eru 10,8 milljarðar sem ríkisstjórnin er að senda landsmönnum og heimilunum hér í jólagjöf.