kílómetragjald á ökutæki.
Virðulegur forseti. Já, ég veit ekki hvað maður á að segja þegar maður sér hæstv. ráðherra Samfylkingarinnar koma hér upp og reyna að eigna fyrrverandi hæstv. ráðherra, Bjarna Benediktssyni, hugmyndafræðina að þessu og berjast fyrir hugmyndum hans með kjafti og klóm. Þetta kerfi er komið úr verkefnastofu Stjórnarráðsins um hvernig eigi að innheimta og þá skulum við aðeins vita hvernig það fór. Það var ákveðið að fara eingöngu í þá bíla sem greiddu ekki til vegakerfisins og þeir eru komnir með kílómetragjaldið í dag. Það er búið að tryggja að allir séu að greiða sem nota í dag. Svo kom þetta mál jú vissulega einu sinni hér til þingsins og hvernig endaði það? Alþingi hafnaði því og sendi þetta til baka til ríkisstjórnarinnar. Svo það sé algerlega á hreinu: Það er enginn hér í þessum minni hluta sem hefur talað fyrir þessu kerfi. Alþingi er búið að hafna því, þannig að það sé algerlega á hreinu, og það er slæmt að geta ekki stutt hæstv. ráðherra Loga Einarsson í því að fylgja málefnum Bjarna Benediktssonar eftir.